Fótbolti

„Vildum vinna þetta fyrir hann“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Harry Kane var tekinn snemma af velli í úrslitaleiknum í kvöld.
Harry Kane var tekinn snemma af velli í úrslitaleiknum í kvöld. Catherine Ivill - AMA/Getty Images

Harry Kane, fyrirliði enska landsliðsins í knattspyrnu, var eðlilega niðurlútur eftir að liðinu mistókst að vinna sinn fyrsta Evrópumeistaratitil í sögunni er liðið tapaði 2-1 gegn Spánverjum í úrslitum EM í kvöld.

„Það er erfitt að útskýra það hvernig okkur líður núna. Þetta var erfiður leikur, en við gerðum vel í að koma okkur aftur inn í leikinn eftir að við lentum undir. Við áttum hins vegar í erfiðleikum með að byggja ofan á það og að fá á sig mark svona í lokin er eitthvað sem er erfitt að kyngja,“ sagði framherjinn í leikslok.

„Við erum búnir að vera að lenda undir og snúa leikjum við allt mótið. Við erum með það í okkar vopnabúri. En í kvöld náðum við ekki að taka skrefið og klára dæmið.“

„Við vorum í vandræðum í fyrri hálfleik og áttum erfitt með að halda boltanum. Við gerðum betur í seinni hálfleik og náðum að skora. Svo erum við kærulausir og ein fyrirgjöf klárar þetta,“ bætti Kane við.

Hann segir að leikmenn liðsins hafi viljað vinna þetta fyrir þjálfara liðsins, Gareth Southgate. Kane segist þó ekki vita hvað framtíðin beri í skauti sér fyrir þjálfarann.

„Við nýttum ekki tækifærið. Það er ekki auðvelt að komast í þessa úrslitaleiki og þú verður að nýta tækifærið þegar það gefst. Okkur mistókst það aftur. Það er ótrúlegur sársauki sem fylgir því og þetta verður vont í langan tíma.“

„Gareth mun núna fara heim og taka sér tíma í að ákveða hvað hann gerir. Við vildum vinna þetta fyrir hann.“


Tengdar fréttir

Spánverjar Evrópumeistarar í fjórða sinn

Spánverjar tryggðu sér sinn fjórða Evrópumeistaratitil er liðið vann dramatískan 2-1 sigur gegn Englendingum í úrslitaleik EM á Ólympíuleikvanginum í Berlín í kvöld. Það var varamaðurinn Mikel Oyarzabal sem reyndist hetja Spánverja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×