Tíska og hönnun

Finnst yfir­leitt erfitt að klæða sig upp

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Búningahönnuðurinn Margrét Einarsdóttir er viðmælandi vikunnar í Tískutali.
Búningahönnuðurinn Margrét Einarsdóttir er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Aðsend

Margrét Einarsdóttir búningahönnuður hefur komið víða að og sér meðal annars um klæðaburð karakteranna í stórmyndinni Snertingu. Tíska hefur alltaf verið stórt áhugamál hjá henni og er auðvitað órjúfanlegur hluti af hennar lífi en Margrét er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Tískutal er fastur liður á Vísi þar sem rætt er við ólíka einstaklinga um þeirra persónulega stíl og hvernig tíska nýtist þeim í daglegu lífi. Klæðaburður er sannarlega fjölbreytt listform en við fáum að skyggnast inn í ólíka fataskápa og fræðast nánar um það merkilega tjáningarform sem tíska er fyrir hverjum og einum viðmælanda.

Hvað finnst þér skemmtilegast við tískuna?

Það sem mér finnst skemmtilegast við tískuna er í raun endurtekningin og hringirnir sem tískan fer í. Hvernig tískan sækir innblástur í sjálfa sig. Ég hef alltaf haft áhuga á fatnaði, tísku og að tjáningu tengdri henni og hef verið að teikna og skapa flíkur frá því ég var barn. 

Áhuginn á búningunum kemur svo gegnum mikinn áhuga á sögum og þörfinni að segja sögur gegnum búninga bæði í leikhúsi og kvikmyndum.

Margrét byrjaði ung að aldri að teikna og skapa en hér má sjá teikningu frá henni frá því hún var lítil.Aðsend

Hver er uppáhalds flíkin þín og af hverju?

Uppáhalds flíkin mín þessa dagana er jakkinn Laugardalur frá 66 Norður. Þetta er síð pixluð skel og ég hef varla farið úr henni. Geggjuð flík, mig langar í buxurnar líka.

Jakkinn umræddi sem er í uppáhaldi hjá Margréti.66 Norður

Eyðirðu miklum tíma í að velja föt hverju sinni?

Ég eyði alls ekki löngum tíma í að velja mér föt dags daglega tek ég oftast frekar handahófskennt úr skápnum. Frekar lítil pæling sem fer í þetta, meira tilfinning.

Margrét fylgir tilfinningunni í klæðaburði og er lítið að ofhugsa.Aðsend

Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum?

Myndi segja að stíllinn minn sé einfaldur og praktískur. Mér finnst samt gaman að brjóta upp með einhverju óvæntu svona þegar maður er í stuði.

Margrét lýsir stílnum sínum sem einföldum og praktískum.Aðsend

Hefur stíllinn þinn breyst mikið í gegnum tíðina og hvernig þá?

Stíllinn minn hefur breyst gegnum tíðina í klassískari og praktískari átt.

Með tímanum sækir Margrét meira í klassískt og praktískt í tískunni.Aðsend

Nýturðu þess að klæða þig upp?

Mér finnst yfirleitt frekar erfitt að klæða mig upp. Mér líður best svona millifín og casual. Það krefst meira átaks að klæða mig upp.

Margrét er almennt ekki fyrir það að klæða sig upp en sækir meira í að vera millifín.Aðsend

Hvaðan sækirðu innblástur í tískunni?

Innblástur minn í tísku og hönnun kemur svo víða að. Lestur, tónlist, myndlist og umhverfi. Auðvitað þegar maður hannar verk eins og Snertingu kafar maður líka í tímabilið. 

Það þarf að skoða tíðarandann og tískuna á annan hátt en maður myndi annars gera. Alveg hrikalega skemmtilegt.

Margrét hér með Pálma Kormáli sem leikur aðalhlutverkið í Snertingu.Aðsend

Ertu með einhver boð og bönn þegar það kemur að klæðaburði?

Boð og bönn í tísku og klæðaburði virka ekki fyrir mig. Mér finnst bara alveg frábært að sjá fólk tjá sig í klæðaburði og nota sköpunarkraftinn á annan hátt en næsti einstaklingur. Það gleður mig að sjá hugrekkið sem margur hefur.

Hver er eftirminnilegasta flík sem þú hefur klæðst og af hverju?

Eftirminnilegasta flík sem ég hef klæðst er brúðarkjóllinn minn. Ég hannaði hann sjálf þarna á síðustu öld. Það eru fyrst og fremst minningarnar og tilfinningarnar sem tengjast þessum degi og þessari flík.
Margrét á brúðkaupsdaginn í kjól sem hún hannaði sjálf.Aðsend

Býrðu yfir einhverju góðu ráði þegar það kemur að tísku?

Ég held að við ættum að fylgja eigin tilfinningu vel hvernig við klæðum okkur. Hugsa minna um hvað öðrum finnst um það. Njóta þess að vera í eigin skinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×