Innlent

Lög­reglu­rann­sókn hafi engin á­hrif á veitingu læknaleyfis

Árni Sæberg skrifar
Skúli Tómas starfar á Landspítalanum í Fossvogi.
Skúli Tómas starfar á Landspítalanum í Fossvogi. Vísir

Læknir sem sætir enn rannsókn grunaður um að hafa orðið sjúklingum sínum að aldurstila hefur fengið ótakmarkað læknaleyfi á ný. Að sögn Embættis landlæknis er hvergi fjallað um að yfirstandandi lögreglurannsókn sé takmarkandi þáttur, þegar endurveiting starfsleyfis er annars vegar, í lögum um landlækni og lýðheilsu.

Talsverða athygli vakti á dögunum þegar greint var frá því að Skúli Tómas Gunnlaugsson hefði fengið fulla endurnýjun á læknaleyfi sínu þann 2. júní síðastliðinn. Að sögn Karls Inga Vilbergssonar, saksóknara hjá Héraðssaksóknara, er mál Skúla Tómasar enn til meðferðar hjá embættinu. 

Hann er grunaður um röð alvarlegra mistaka og vanrækslu og um að hafa valdið ótímabærum dauða níu sjúklinga.

Skúli var upphaflega sviptur lækningaleyfinu en fékk síðan takmarkað lækningaleyfi. Þá hóf hann störf á Landspítala og sinnti því verkefni að yfirfara gögn sjúklinga til stuðnings við störf annarra lækna. 

Ekki stóð til að hann yrði í samskiptum við sjúklinga á meðan hann væri í endurmenntun og þjálfun á spítalanum. Þó sinnti hann sjúklingum af og til þegar aðstæður á Landspítala voru þess eðlis að það teldist nauðsynlegt.

Landlæknir sagði sig frá málinu

Vísir sendi Embætti landlæknis fyrirspurn vegna máls Skúla Tómasar þegar hann fékk endurnýjun læknaleyfis. Í svörum embættisins kemur fram að Alma Möller landlæknir svari ekki fyrir þetta tiltekna mál. 

Hún hafi ákveðið að víkja sæti samstundis og lögfræðingur henni tengdur fjölskylduböndum hóf að sinna málum Skúla Tómasar gagnvart embætti landlæknis. Alma hafi þá sent heilbrigðisráðherra beiðni um að annar læknir yrði settur landlæknir í umræddu máli líkt og stjórnsýslulög gera ráð fyrir.

Fagleg endurhæfing dugir

Í svörum embættisins segir að embættið geti ekki tjáð sig um einstök mál. Almennt gildi þó að fjallað er um endurveitingu starfsleyfis í lögum um landlækni og lýðheilsu.

Þar segir: „Landlæknir getur veitt heilbrigðisstarfsmanni, sem sviptur hefur verið starfsleyfi eða hefur afsalað sér því, starfsleyfi að nýju enda hafi viðkomandi sýnt fram á að hann uppfylli skilyrði laga fyrir endurveitingu starfsleyfis og að þær ástæður sem leiddu til sviptingar eða afsals eigi ekki lengur við. Landlæknir getur ákveðið að endurveitt starfsleyfi skuli vera tímabundið eða takmarkað.“

Þannig geti viðkomandi heilbrigðisstarfsmaður fengið leyfi, til dæmis ef bata vegna sjúkdóms sem leiddi til sviptingar er náð eða þegar faglegri endurhæfingu, -menntun og -þjálfun er lokið ef ástæða sviptingar var fagleg vanhæfni. 

„Í umræddri grein/lögum er hvergi fjallað um að yfirstandandi rannsókn lögregluyfirvalda sé takmarkandi þáttur þegar endurveiting starfsleyfis er annars vegar.“

Hreint sakarvottorð ekki skilyrði

Þá segir að hið sama eigi við um reglugerð um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta lækningaleyfi og sérfræðileyfi. Þá megi nefna að í fyrrnefndum lögum og reglugerð sé að auki ekki fjallað um að hreint sakavottorð sé skilyrði fyrir veitingu eða endurveitingu starfsleyfis en heilbrigðisstofnun geti vitanlega gert kröfu um slíkt.

Þá segir í svörunum að ef mál heilbrigðisstarfsmanna eru til meðferðar hjá lögreglu fylgist embættið með framvindu mála eins og unnt er.


Tengdar fréttir

Skúli Tómas kominn í leyfi frá Land­spítala

Læknirinn sem grunaður er um að hafa mögulega valdið ótímabærum andlátum níu sjúklinga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja á árunum 2018 til 2020 er kominn í leyfi frá Landspítalanum.

Skúli Tómas kominn aftur til starfa hjá Land­spítalanum

Læknir sem grunaður er um að hafa mögulega valdið ótímabærum andlátum níu sjúklinga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) er kominn aftur til starfa hjá Landspítalanum. Læknirinn starfar þó ekki með sjúklingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×