Innlent

Fjöldi smitaðra af Covid kallar á að­gerðir

Árni Sæberg skrifar
Fjöldi hefur greinst smitaður á Landspítala undanfarið.
Fjöldi hefur greinst smitaður á Landspítala undanfarið. Vísir/Vilhelm

Talsverð fölgun smitaðra af Covid í samfélaginu og á Landspítala kallar á aðgerðir til að stemma stigu við útbreiðslu þeirra. 

Þetta segir í tilkynningu frá farsóttanefnd og sýkingavarnadeild Landspítala. Þar segir að að undanförnu hafi Covid skotið upp kollinum á átta deildum Landspítala og breiðist hratt út á nokkrum þeirra.

32 í einangrun

Sjúklingar hafi smitast og verið einangraðir samkvæmt verklagsreglum þar um, en einnig sé talsvert um að starfsfólk smitist og sé frá vinnu, jafnvel í marga daga. Nú að morgni 16. júlí séu 32 sjúklingar í einangrun vegna Covid á Landspítala í þremur húsum, Landakoti, Hringbraut og Fossvogi. Þetta sé þriðja sumarið sem bylgja Covid-sýkinga herji á landsmenn.

Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, segir í samtali við fréttastofu að sjúklingarnir 32 séu ekki alvarlega veikir vegna veirunnar.

Vert sé að árétta að sjúklingar með veirusýkingar í öndunarfærum og einkenni af þeim séu alltaf einangraðir frá öðrum hvort sem um sé að ræða inflúensu, RS veiru eða Covid. Ávallt sé viðhöfð grundvallarsmitgát í öllum sjúklingasamskiptum en nú sé nauðsynlegt að grípa til frekari aðgerða, sem hafi reynst vel í fyrri Covid-bylgjum.

Á Landspítala muni eftirfarandi aðgerðir taka gildi að morgni 17. júlí kl. 8:

  1. Grímuskylda í öllum sjúklingasamskiptum. Þá gildir að starfsfólk ber grímu í samskiptum við inniliggjandi sjúklinga. Þeir sem koma á göngudeildir skulu bera grímu og einnig er öllum heimsóknargestum og öðrum utanaðkomandi aðilum skylt að bera grímu. Starfsfólk þarf ekki að bera grímu í starfsmannarýmum nema það sé með einkenni sem gætu bent til öndunarfærasýkingar.
  2. Handhreinsun: Öllum er skylt að hreinsa hendur enda er það einfaldasta og áhrifaríkasta leiðin til að rjúfa smitleiðir.
  3. Heimsóknatakmarkanir: Heimsóknartími verður styttur og verður nú frá 17-19 virka daga og frá 15-18 um helgar. Mælst er til að börn undir 12 ára aldri komi ekki í heimsókn og að ekki komi fleiri en tveir í einu til hvers sjúklings. Eins og áður er alltaf tekið tillit til aðstæðna og undanþágur gefnar (vaktstjóri á deild) en þetta er meginlínan.

Þegar faraldur er á deild sé heimilt að loka alveg fyrir heimsóknir tímabundið en deildir hafi þó áfram þann möguleika að gefa undanþágur. Þessar reglur taki gildi miðvikudaginn 17. júlí kl. 8 og verði endurskoðaðar mánudaginn 21. júlí á fundi farsóttanefndar og sýkingavarnadeildar.

„Við væntum góðrar samvinnu við alla hlutaðeigandi. Það er mikið í húfi og aðeins með samstilltu átaki náum við árangri.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×