Golf

Einn sá skraut­legasti mættur á Opna breska

Smári Jökull Jónsson skrifar
John Daly er mættur á Opna breska meistaramótið.
John Daly er mættur á Opna breska meistaramótið. Vísir/Getty

Bandaríski kylfingurinn John Daly er mættur á Opna breska meistaramótið í golfi en Daly er enn einn lítríkasti kylfingurinn í golfheiminum. 

John Daly er gamalreyndur í golfheiminum en þessi 58 ára gamli Bandaríkjamaður hefur alltaf vakið athygli fyrir lífsstíl sinn og framkomu sem er öðruvísi en hjá flestum atvinnukylfingum.

Daly er mættur til Skotlands til að taka þátt í Opna breska meistaramótinu á Royal Troon vellinum en hann fær frípassa á mótið allt þar til hann verður sextugur líkt og allir fyrrum sigurvegarar. Daly vann mótið árið 1995 þegar það fór fram á St. Andrews í Skotlandi.

Daly sást á vellinum í dag á æfingu fyrir mótið um helgina og sveik engann. Hann gekk um völlinn í skrautlegum klæðnaði og með sígarettu í munninum líkt og svo oft áður. 

Daly á æfingahringnum.Vísir/Getty

Þegar PGA-meistaramótið fór fram í Bandaríkjunum í maí reykti Daly tvo pakka á fyrsta og eina hringnum sínum og skellti þar að auki í sig fjórum Snickers.

Daly hefur alltaf þótt einn sá skemmtilegasti í golfheiminum en var einnig frábær kylfingur. Hann fékk viðurnefnið „Long John“ fyrir gríðarlöng teighögg sín og fyrir utan sigur á Opna breska mótinu árið 1995 vann hann einn sigur á PGA-mótaröðinni árið 1991.

Opna breska mótið hefst á fimmtudag og verður allt mótið í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 4 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×