Erlent

Tveir fundust skotnir til bana í brunnum bíl í Malmö

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Bílnum var ekið frá Kaupmannahöfn til Malmö.
Bílnum var ekið frá Kaupmannahöfn til Malmö. Getty

Sænska lögreglan rannsakar nú mál þar sem tvö lík fundust skotin og brunnin í bílaleigubíl á iðnaðarsvæði í Malmö. Um var að ræða ökumann og farþega sem virðast hafa verið drepnir á sunnudag, samkvæmt Aftonbladet.

Bílaleigubíllinn var leigður af breskum ríkisborgara á Kastrup í Kaupmannahöfn og ekið yfir til Svíþjóðar. Talsmaður breska utanríkisráðuneytisins hefur staðfest að unnið sé að stuðningi við fjölskyldur tveggja Breta sem er saknað í Svíþjóð.

Lögregluyfirvöld í Svíþjóð hafa auglýst eftir einstaklingum sem sáu mögulega bifreiðina en um er að ræða svarta Toyota RAV4 bifreið, skráða í Danmörku. Þau hafa ekki viljað tjá sig um það hvort morðin tengjast mögulega átökum gengja, sem hafa færst verulega í vöxt á síðustu árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×