Fótbolti

Fórnaði sér fyrir fyrsta boltann frá Mbappé

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það var mjög vel tekið á móti Kylian Mbappe á Estadio Santiago Bernabéu í gær. Hér fer hann í gegnum hóp stuðningsmanna Real Madrid.
Það var mjög vel tekið á móti Kylian Mbappe á Estadio Santiago Bernabéu í gær. Hér fer hann í gegnum hóp stuðningsmanna Real Madrid. Getty/Antonio Villalba

Stuðningsmenn Real Madrid fjölmenntu í gær til að taka á móti nýjustu stórstjörnu félagsins.

Franski framherjinn Kylian Mbappé var þá kynntur til leiks sem nýr leikmaður Real. 

Það er talið að um áttatíu þúsund manns hafi tekið á móti honum á Santiago Bernabeu leikvanginum í Madrid og Mbappé treyjurnar seldust líka eins og heitar lummur síðustu daga.

Mbappé var þarna í Real Madrid treyju númer níu en hann sóttist ekki eftir sínu númeri (tían) því það væri treyja Luka Modric hjá Real Madrid.

Athygli vakti þegar Mbappé sparkaði bolta upp í stúku. Þetta var auðvitað fyrsta spark Mbappé í Real Madrid búningnum og því eftirsóttur bolti í boði.

Einn stuðningsmaður Real Madrid fórnaði sér líka til þess að ná þessum bolta eins og sjá má hér fyrir neðan.

Hann skutlaði sér á eftir boltanum og ætti að geta sett hann á góðan stað í stofunni eða selt boltann fyrir dágóða upphæð á netinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×