Innlent

Á­kærður fyrir að stinga mann í heima­húsi í Súða­vík

Jón Þór Stefánsson skrifar
Atvikið sem málið varðar átti sér stað á Súðavík.
Atvikið sem málið varðar átti sér stað á Súðavík. Vísir/Vilhelm

Ungur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að stinga annan mann í heimahúsi í Súðavík þann 11. júní síðastliðinn.

Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson í samtali við fréttastofu, en Mbl.is greindi fyrst frá.

Karl Ingi segir að maðurinn sé ákærður fyrir tilraun til manndráps, en greint var frá því að maðurinn sem varð fyrir árásinni hafi fengið lífshættulega áverka, en hann er komin úr lífshættu.

Maðurinn sem er grunaður í málinu hefur sætt gæsluvarðhaldi síðan málið kom upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×