Viðskipti innlent

Einar Hrafn ráðinn markaðs­stjóri

Árni Sæberg skrifar
Einar Hrafn Stefánsson hefur verið ráðinn sem markaðsstjóri Blikks.
Einar Hrafn Stefánsson hefur verið ráðinn sem markaðsstjóri Blikks. Anna Maggý

Einar Hrafn Stefánsson tónlistarmaður hefur verið ráðinn til nýsköpunar- og fjártæknifyrirtækisins Blikk í starf markaðsstjóra.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Einar Hrafn hafi víðtæka reynslu úr markaðsgeiranum. Hann hafi starfað áður hjá Píeta samtökunum, Íslenska dansflokknum og Ölgerðinni. Einnig hafi hann starfað sem stundakennari í markaðssetningu og kynningarmálum við Háskólann á Bifröst.

Einar Hraf hvað þekktastur fyrir störf sín í tónlist, meðal annars í hljómsveitunum Vök og Hatara. Síðustu misseri hefur hann starfað náið með palestínska tónlistarmanninum Bashar Murad. Haustið 2019 fékk hann viðurkenningu frá JCI Ísland fyrir framlag sitt til menningarstarfsemi sem einn af „framúrskarandi ungum Íslendingum“.

Í tilkynningu segir að greiðslulausn Blikk byggi á bankamillifærslum í stað kortafærslna, svokölluð reikning-í-reikning greiðslulausn. Með Blikk verði allir milliliðir óþarfir þar sem greiðslur og uppgjör séu í rauntíma og því mun skilvirkari, ódýrari og einfaldari lausn. Þá sé hún traust og áreiðanleg.

Með Blikk sé hægt að greiða fyrir vörur og þjónustu á staðnum, í netverslun, smáforriti verslana auk þess að greiða áskriftir og reikninga á mun hagstæðari hátt en í hefðbundnum korta-og bankaviðskiptum.

Greiðslulausn Blikk hafi verið ýtt úr vör og sé til notkunar hjá Acro verðbréfum og Domino’s.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×