Erlent

For­ysta Demó­krata­flokksins farin að þrýsta á Biden

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Það hefur lítið farið fyrir Biden í fjölmiðlum vestanhafs síðustu viku. Donald Trump hefur á sama tíma baðað sig í sviðsljósinu á vel heppnuðu landsþingi, í kjölfar misheppnaðs banatilræðis.
Það hefur lítið farið fyrir Biden í fjölmiðlum vestanhafs síðustu viku. Donald Trump hefur á sama tíma baðað sig í sviðsljósinu á vel heppnuðu landsþingi, í kjölfar misheppnaðs banatilræðis. Getty

Forysta Demókrataflokksins virðist vera farin að setja þrýsting á Joe Biden Bandaríkjaforseta um að stíga til hliðar í forsetakosningunum og hleypa öðrum að.

CNN hefur greint frá því að Nancy Pelosi, fyrrverandi forseti neðri deildar þingsins, hafi sagt við forsetann í símtali síðustu viku að skoðanakannanir sýndu að hann gæti ekki sigrað Trump. Þá hefur verið greint frá því að Chuck Schumer og Hakeem Jeffries, leiðtogar Demókrata á þinginu, hafi lýst áhyggjum sínum.

Samkvæmt New York Times sögðu báðir í samtölum við Biden á síðustu viku að þeir hefðu áhyggjur af möguleikum hans á að sigra Trump og ekki síður af áhrifum þess á komandi þingkosningar, þar sem meirihlutinn í báðum þingdeildum gæti fallið Repúblikönum í skaut.

„Forsetinn sagði báðum leiðtogum að hann væri forsetaefni flokksins, að hann hefði í hyggju að sigra og að hann hlakkaði til að vinna með báðum til að koma í gegn 100 daga áætlun sinni til að aðstoða vinnandi fjölskyldum,“ sagði Andrew Bates, talsmaður Hvíta hússins, um samtölin.

Bates svaraði fyrirspurnum CNN um Pelosi á sama hátt.

Pelosi er fyrir sitt leiti sögð hafa lagt á það áherslu að samkvæmt könnunum ætti Biden ekki möguleika á því að vinna Trump. Forsetinn, sem er nýgreindur með Covid-19, er sagður hafa sagst ósammála.

Samkvæmt CNN gátu heimildarmenn ekki svarað því hvort Pelosi hefði bókstaflega kallað eftir því að Biden hætti við að sækjast eftir endurkjöri, sem forsetinn hefur hafnað að gera nema ef honum yrði tjáð að það væri óráðlegt af læknisfræðilegum ástæðum.

Pelosi og fleiri Demókratar, hafa ítrekað sagt að það sé undir forsetanum komið að ákveða hvað hann gerir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×