Golf

Aron Snær og Sigurður Arnar á sex undir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aron Snær Júlíusson varð Íslandsmeistari fyrir þremur árum.
Aron Snær Júlíusson varð Íslandsmeistari fyrir þremur árum. GSÍ/seth@golf.is

Aron Snær Júlíusson varð Íslandsmeistari í golfi fyrir þremur árum og hann byrjar Íslandsmótið í ár vel. Mótið fer fram að þessu sinni á Hólmsvelli í Leiru.

Aron Snær lék fyrsta hringinn á 65 höggum undir pari. Hann deilir efsta sætinu með Sigurði Arnari Garðarssyni sem lék einni á sex höggum undir pari.

Sigurður Arnar, sem er 22 ára gamall, er úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar eins og Aron Snær sem er sex árum eldri.

Báðir fengu þeir sex fugla á hringnum og töpuðu ekki höggi á einni einustu holu. Sex fuglar og tólf pör.

Aron Snær og Sigurður Arnar eru tveimur höggum á undan næstu mönnum sem eru Magnús Yngvi Sigsteinsson, Sigurður Bjarki Blumenstein og Jóhannes Guðmundsson.

Jóhannes átti mjög litríkan hring því hann var með átta fugla og tvo skramba í dag.

Einar Bjarni Helgason, sem fór holu í höggi á níundu holunni, endaði fyrsta hringinn á því að spila á tveimur höggum undir pari. Tveimur holum eftir að hann fór holu í höggi þá fékk hann skramba.

Það er hægt að fylgjast með skori keppenda hér en margir eiga enn eftir að klára í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×