Innlent

Hjól­hýsa­búum „gert að búa á sorp­haug“

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Kolbrún segir að umhverfið við Sævarhöfða sé mannskemmandi.
Kolbrún segir að umhverfið við Sævarhöfða sé mannskemmandi. Vísir/Vilhelm

Oddviti Flokks Fólksins í borgarstjórn segir hjólhýsabúa Reykjavíkur búa við mannskemmandi umhverfi. Hún segir fólkinu gert að búa á hreinum sorphaug við Sævarhöfða. Svæðið við Sævarhöfða hafi átt að vera til bráðabirgðar, en enn í dag búi þar á annan tug manns við ömurlegar aðstæður.

„Ég fór í morgun og heimsótti hjólabúa við Sævarhöfða og brá illa við. Þessu fólki er gert að búa á hreinum sorphaug. Af hverju er ekki hægt að finna reit fyrir hjólabúa í borgarlandinu sem er mannsæmandi og nálægt helstu grunnþjónustu?“ segir Kolbrún, en hún fjallaði um málið í aðsendri grein á Vísi í kvöld.

Mannskemmandi umhverfi

Planið sem fólkið er á nú er í eigu borgarinnar við gamla verksmiðjubyggingu skammt frá Sævarhöfða. Kolbrún segir svæðið hafa átt að vera til bráðabirgða, eða að hámarki tólf vikur. Nú rétt tæpu ári síðar hafi enn ekkert frést frá borgaryfirvöldum í málinu.

Maður sem hefur þar yfirumsjón með húsinu við hliðina veiti þeim afnot að salernum og sturtum án endurgjalds. Ekkert heitt vatn sé hinsvegar í sturtunum. Íbúar komist þar í rafmagn og greiði fyrir það.

Fréttastofa Stöðvar 2 ræddi við íbúa á svæðinu síðastliðið haust.

Ekkert heitt vatn er í sturtunumAðsend

„Umhverfið er einstaklega óaðlaðandi. Þarna má sjá alls konar drasl og sorp. Planið sem hýsin standa á er sóðalegt. Rúðugler sem brotnað hefur úr gömlu verksmiðjubyggingunni hefur sáldrast yfir planið,“ segir Kolbrún.

Hjólabúar hafi lengi þrýst á borgina að finna lausn, bæði til skemmri tíma og lengri. Þeim líði illa á svæðinu en geti hvergi farið.

Hjólhýsin eru á planinu við Sævarhöfða.Vísir

Hávaðamengun öllum tímum sólarhrings

Formaður Samtaka hjólabúa sendi borgarstjórn erindi á dögunum, þar sem hann sagði meðal annars að hávaðamengun væri á svæðinu öllum tímum sólarhrings vegna umferðar og öðrum sem hafa aðstöðu á svæðinu. Umferðaráreitið komi í veg fyrir að íbúar geti verið úti í góðu veðri.

Útsýni yfir iðnaðarsvæðið.Vísir

Í verstu veðrunum sem dunið hafa yfir, hafi fólkið verið á nálum og jafnvel ekki getað sofið. Svo mikil séu lætin og höggin sem dynji á tækunum. Engin mokstur hafi verið á svæðinu í vetur.

Brýnt að borgin skapi fullnægjandi aðstæður

Kolbrún segir að Flokkur fólksins hafi frá árinu 2018 ítrekað reynt að vekja athygli á málefnum hjólabúa. Tillaga flokksins um að borgin tilgreini svæði fyrir hjólhýsi og húsbíla til framtíðar í nálægð við alla helstu grunnþjónustu í Reykjavík hafi verið lögð fram í borgarráði. Þaðan hafi henni verið vísað til velferðarráðs þar sem henni var hafnað af meirihlutanum.

Fólkið fær afnot af aðstöðunni án endurgjalds.Vísir

„Það er brýnt að Reykjavíkurborg skapi þessum hópi fullnægjandi aðstæður til að vera með sín hjólhýsi eða húsbíla á stað þar sem þau geta verið örugg til framtíðar,“ segir Kolbrún.

Í löndum sem við berum okkur saman við séu tilgreind svæði fyrir húsbíla og hjólhýsi þar sem fólk býr árið um kring og láti vel að því. 

„Það er ekki fram hjá því litið að hjólhýsi er ódýrt „húsnæði“ í samanburði við aðra kosti. Það þarf því ekki að koma á óvart í þeim húsnæðisvanda sem ríkt hefur í Reykjavík, að fyrir einhverja kann þetta að vera raunhæfur kostur þ.e.a.s. fáist framtíðarstaðsetning í sem hentar hjólhýsi,“ segir Kolbrún, en að sumir velji að búa í hjólhýsi af öðrum ástæðum en efnahagslegum.

Kolbrún krefst þess að borgarstjórn finni strax betri stað fyrir hjólabúa á meðan verið er að skoða hvaða svæði geti hentað til framtíðar. Staðan í þessum málum sé með öllu óviðunandi eins og hún er í dag.

Erindið sem formaður Samtaka hjólabúa sendi til borgarstjórnar í heild sinni er svohljóðandi:

„Við höfum þurft að þola stöðugt áreiti vegna umferðar sem gerir okkur ókleift að sitja úti ef veður leifir vegna hávaðamengunar, hávaða frá öðrum sem aðstöðu hafa á svæðinu á öllum tímum sólarhrings. Við höfum þurft að kalla til lögreglu vegna partýstands í nærliggjandi húsum og unglingadrykkju sem því hefur fylgt. Það hefur verið stolið frá okkur, brotist var inn í hólf eins tækisins til að taka gaskúta. Í verstu veðrunum sem dunið hafa yfir, höfum við verið á nálum og jafnvel ekki getað sofið, af áhyggjum um hvort tækin okkar fari af stað, svo mikil eru lætin og höggin sem dynja á tækjunum í verstu hviðunum. Í vetur var enginn mokstur hjá okkur og þurftum við að sand/saltbera sjálf, að einu eða tveimur skiptum undanskildum, ef við vildum ekki detta og slasa okkur“.


Tengdar fréttir

„Ég væri dauð ef ég væri ekki já­kvæð“

Hópur fólks hefst nú við í hjólhýsum í niðurníddu iðnaðarhverfi á Sævarhöfða eftir að þeim var gert að yfirgefa tjaldsvæðið í Laugardal í sumar. Þau gagnrýna skort á svörum frá borginni harðlega og kalla enn og aftur eftir varanlegri staðsetningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×