Golf

Brown leiðir eftir fyrsta hring

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Daniel Brown leiðir.
Daniel Brown leiðir. Andrew Redington/Getty Images

Daniel Brown frá Englandi trónir á toppnum þegar fyrsta hring á Opna meistaramótinu í golfi er lokið. Hann lék fyrsta hringinn á sex höggum undir pari.

Fyrir lokaholu dagsins leit út fyrir að Shane Lowry frá Írlandi yrði jafn Brown á fimm höggum undir pari en Brown hafði önnur plön. Hann tryggði sér fyrsta sætið að loknum fyrsta hring og skildi Lowry eftir í öðru sæti.

Bandaríkjamaðurinn Justin Thomas er svo í þriðja sæti á þremur höggum undir pari. Þar á eftir koma sjö kylfingar jafnir á tveimur höggum undir pari. Goðsögnin Tiger Woods átti gríðarlega erfitt uppdráttar í dag og er sem stendur í 138. sæti ásamt fjölda annarra kylfinga á átta höggum yfir pari.

Opna meistaramótið heldur áfram á rásum Stöðvar 2 Sport á morgun. Útsending hefst á Stöð 2 Sport 4 klukkan 05.30 í fyrramálið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×