Lífið

Ekki saman á brúðkaupsafmælinu

Máni Snær Þorláksson skrifar
Ben Affleck og Jennifer Lopez í New York þann 30. mars síðastliðinn.
Ben Affleck og Jennifer Lopez í New York þann 30. mars síðastliðinn. MEGA/GC Images

Hjónin Jennifer Lopez og Ben Affleck vörðu tveggja ára brúðkaupsafmælinu sínu í sitt hvoru lagi. Þetta ýtir undir þann orðróm að sambandi þeirra sé lokið en hjónin hafa ekki sést saman í um mánuð.

Söng- og leikkonan Jennifer Lopez hélt upp á brúðkaupsafmæli þeirra hjóna, ef svo má segja, á Hamptons svæðinu á Long Island í New York. Leikarinn Ben Affleck var hvergi sjáanlegur en hann er sagður staddur í Los Angeles vegna vinnu.

Lopez fór út að borða með syni sínum Max og aðstoðarmanni á veitingastaðnum Arthur & Sons. Veitingastaðurinn opnaði fyrr í sumar og hefur víst verið afar vinsæll. Samkvæmt heimildum Page Six var Lopez brosandi á meðan hópurinn borðaði saman á verönd veitingastaðarins. 

Heimildaöflunin stoppaði þó ekki þar því auk þessa kemur fram að hópurinn hafi pantað sér spagettí með tómötum og basil og smokkfisk. Þá fengu þau sér cannoli í eftirrétt og tóku svo limoncello ostaköku með sér heim. 

Þrátt fyrir að kenningar séu um að sambandi Lopez og Affleck sé lokið er ekkert staðfest í þeim efnum. Þá var greint frá því um síðustu helgi að Lopez hefði eytt deginum með stjúpdóttur sinni, Violet Affleck.

Þær stöllur sáust ganga saman með hendurnar utan um hvora aðra í Hamptons ásamt bestu vinkonu Violet, Cassidey Fralin. Þá fóru þær saman á antík sýningu þar sem þær eru sagðar hafa verslað skartgripi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.