Innlent

Næga at­vinnu að hafa á Vopna­firði

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Valdimar O. Hermannsson, sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps, sem er ánægður hvað allt gengur ljómandi vel í sveitarfélaginu og mikill kraftur á öllum sviðum.
Valdimar O. Hermannsson, sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps, sem er ánægður hvað allt gengur ljómandi vel í sveitarfélaginu og mikill kraftur á öllum sviðum. Aðsend

Allir sem að vettlingi geta valdið og vantar vinnu geta fengið vinnu á Vopnafirði enda nóg að gera þar og atvinnulífið blómstrar, sem aldrei fyrr.

Það er engin lognmolla í Vopnafjarðarhreppi því þar blómstrar menningin, ferðaþjónustuna og önnur starfsemi, auk atvinnulífsins, sem hefur sjaldan eða aldrei verið eins öflugt og nú.

Valdimar O. Hermannsson er sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps

„Menn eru svona að setja sig í stellingar um allskonar framkvæmdir og við leggjum mikið upp úr því að hafa bæinn snyrtilegan yfir sumartímann til þess að taka vel á móti gestum,” segir Valdimar og bætir við.

„Það er margt í gangi og nýlega farin af stað vertíð í makrílnum og þetta er náttúrulega mikið sjávarútvegstengd en líka laxveiðitengd og það er mikil uppbygging í kringum laxveiðiárnar eins og þekkt er.”

Hvernig er atvinnuástandið?

„Það er bara mjög gott, það geta allir fengið vinnu, sem vilja og kannski eina, sem hefur háð okkur í því er að við þurfum að drífa okkur í íbúðauppbyggingu af því að það hefur háð ákveðinni atvinnubyggingu, sérstaklega á vertíðartímanum, þá vantar húsnæði og hefur ekki verið mikið byggt af nýju,” segir Valdimar.

Næga atvinnu er að hafa á staðnum.Aðsend

Í dag eru íbúar Vopnafjarðarhrepps um 650 en töluverð fjölgun íbúa hefur átt sér stað á síðustu árum. Brim er stærsta útgerðarfyrirtæki á staðnum og svo er mjög öflug heilbrigðisstarfsemi á staðnum, bæði heilsugæsla og hjúkrunar- og dvalarheimilið Sundabúð svo eitthvað sé nefnt.

„Síðan eru vaxandi umsvif í kringum laxveiðiárnar og mikil uppbygging í kringum það. Það eru mikið af verktökum, sem koma að því, ekki bara laxveiðimennirnir sjálfir heldur verktar, sem eru að endurbyggja og byggja ný veiðihús og allt þetta,” segir Valdimar, sveitarstjóri Vopafjarðarhrepps.

Í dag eru íbúar sveitarfélagsins um 650 talsins og fer smátt og smátt fjölgandi.Aðsend



Fleiri fréttir

Sjá meira


×