Erlent

Mögu­lega mis­tök eins for­ritara

Eiður Þór Árnason og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifa
Anton Már Egilsson, forstjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis telur að kerfi eigi ekki að vera jafn berskjölduð fyrir mannlegum mistökum og raunin reyndist í dag. 
Anton Már Egilsson, forstjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis telur að kerfi eigi ekki að vera jafn berskjölduð fyrir mannlegum mistökum og raunin reyndist í dag.  Stöð 2

For­stjóri net­öryggis­fyrir­tækisins Syndis segir að stór­tækt hrun tölvu­kerfa í dag sé senni­lega stærsta tækni­á­fall sem heimurinn hafi nokkurn tímann séð. Um­hugsunar­vert sé að sam­fé­lög hafi sett öll eggin í sömu körfuna þegar kemur að hug­búnaði og mögu­lega hafi mis­tök eins starfs­manns haft keðju­verkandi á­hrif um allan heim.

Anton Már Egilsson tekur undir með Elon Musk, forstjóra Tesla og X (áður Twitter), sem telur málið vera mesta upplýsingatækniklúður sögunnar.

Flugsamgöngur, greiðslukerfi og sjónvarpsútsendingar lágu niðri erlendis þegar algjört hrun varð í tölvukerfum Microsoft í dag. Á Íslandi lágu kerfi Landsbankans, allra bókasafna landsins og húðmeðferðarstofu í Vegmúla meðal annars niðri um tíma. Talið er að vandræðin megi rekja til galla í nýrri útgáfu á útbreiddum hugbúnaði frá netöryggisfyrirtækinu CrowdStrike.

Átt að grípa villuna í prófunarferli

„Þarna er undir netöryggishugbúnaður en á sama tíma stýrikerfi frá Microsoft sem er í notkun alls staðar og úr verður þessi stóra bilun í rauninni öllu sem við þurfum að gera,“ sagði Anton Már, forstjóri Syndis í kvöldfréttum Stöðvar 2 en áhrifa gætti í flestum ríkjum heims og fjölmörgum kimum viðskiptalífs og samfélaga.

„Þetta er ekkert annað en feill, mannleg mistök sem liggja þarna að baki, mögulega mistök eins forritara og þróunar- og prófunarferli sem er ekki í lagi og út fer villa sem veldur þessum skaða. Villan lýsir sér þannig að útstöðvar og netþjónar festast í einhvers konar lúppu eða limbói og komast ekki upp aftur.“

Taki tíma að vinda ofan af þessu

Þrátt fyrir að CrowdStrike hafi gefið út lagfæringu klukkutíma eftir að mistakanna varð vart, taki mjög langan tíma að fara handvirkt að hverri einustu vél sem varð fyrir áhrifum og koma henni aftur í loftið.

„Svo eru snjóboltaáhrifin enn víðari þegar undir eru tugþúsundir flugferða og annað sem hefur raskast, og greiðslumiðlun og allt þetta sem þarf að sópa upp sennilega á næstu vikum,“ segir Anton Már.

Ein villa og heimurinn hættir að snúast

Hann telur að lærdóm megi draga af þessu áfalli og þetta sé áminning um það hversu gríðarlega háð tækninni nútímasamfélög eru í dag.

„Þetta er sennilega ekki sviðsmynd sem okkur hefði dottið í hug en þær þarf að hugsa upp og þær þarf að æfa og það þarf að eiga viðbragðsáætlanir við svona áföllum og vera með plön og varakerfi og annað ef hægt er, til að geta þá allavega komist hratt upp frá svona áfalli.“

„Svo held ég að það sé umhugsunarvert kannski hversu mörg egg er búið að setja í sömu körfuna. Við erum gríðarlega háð kerfum Microsoft og þarna er einn framleiðandi sem verður fyrir barðinu á einhvers konar mistökum og heimurinn er hættur að snúast liggur við.“


Tengdar fréttir

„Við vorum bara eins og blindur köttur“

Flugsamgöngur, greiðslukerfi og sjónvarpsútsendingar lágu niðri þegar algjört hrun varð í tölvukerfum Microsoft í dag. Tekið gæti talsverðan tíma að vinda ofan af afleiðingum bilunarinnar á heimsvísu, sem hafði einnig áhrif á Íslandi. Kerfi Landsbankans, allra bókasafna landsins og húðmeðferðarstofu í Vegmúla lágu niðri um tíma í dag.

Mikilvægt að tilkynna alvarleg atvik

Fjarskiptastofa, sem samhæfingarstjórnvald á grundvelli netöryggislaga, og CERT-IS, minna á mikilvægi þess að mikilvægar innviðir tilkynni um öll alvarleg atvik og áhættu sem tengjast þjónustuútföllum hjá Microsoft.

Stærsta atvikið í „mörg, mörg ár“

Meiriháttar kerfisbilun hjá Microsoft hefur valdið hruni í tölvukerfum um allan heim, meðal annars á Íslandi, og skapað öngþveiti á flugvöllum og víðar. Lagfæring á biluninni virðist komin vel á veg en áhrifa kann að gæta í einhverja daga. Netöryggissérfræðingur segir um að ræða eina umfangsmestu kerfisbilun síðari ára, sem sýni fram á mikilvægi góðra viðbragðsáætlana.

„Við vorum bara eins og blindur köttur“

Flugsamgöngur, greiðslukerfi og sjónvarpsútsendingar lágu niðri þegar algjört hrun varð í tölvukerfum Microsoft í dag. Tekið gæti talsverðan tíma að vinda ofan af afleiðingum bilunarinnar á heimsvísu, sem hafði einnig áhrif á Íslandi. Kerfi Landsbankans, allra bókasafna landsins og húðmeðferðarstofu í Vegmúla lágu niðri um tíma í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×