Erlent

Fyrr­verandi þingkona skotin til bana

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Iryna var einnig prófessor í málvísindadeild Lvív-háskóla.
Iryna var einnig prófessor í málvísindadeild Lvív-háskóla. Getty/Anastasiia Smolienko

Fyrrverandi þingkona á úkraínska þinginu var skotinn til bana á götum Lvív-borgar í gær. Lögregla leitar að banamanninum en hann er enn ófundinn.

Írína Farion var úkraínskur þingmaður sem barðist ötullega fyrir úkraínskri tungu og stöðu hennar í úkraínsku samfélagi. Hún sat á þingi fyrir hönd þjóðernishyggjuflokkinn Svoboda. Hún lést sextíu ára að aldri.

Málsamfélagið í Úkraínu er um margt sérstakt þar sem stór hluti Úkraínumanna hafa rússnesku að móðurmáli eða bæði úkraínsku og rússnesku nokkurn veginn jöfnum höndum.

Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir að hann fylgist vel með leitinni og fordæmir árásina.

Írína var málvísindakona og hlaut sæti á þingi árið 2012. Hún hafði einnig setið í héraðsþingi Lvív. Hún vakti mikla athygli fyrir baráttu sína fyrir úkraínskri tungu og að úthúða embættismönnum sem notuðu rússnesku við að framkvæma embættisverk.

Árið 2018 þegar stríð hófst við rússneska aðskilnaðarsinna í Donbas-héraði lét hún til dæmis þau ummæli falla að það ætti að „kýla hvern einasta rússneskumælandi mann í kjálkann.“

Andriy Sa­dovyi borg­ar­stjóri Lvív greindi frá því á Tel­egram að Fari­on hafi látist af sár­um sín­um á sjúkra­húsi í gær­kvöldi. Árás­armaður­inn er sagður hafa skotið Fari­on klukk­an hálf átta að staðar­tíma í gær­kvöldi.

„Ég hef oft sagt að það sé eng­inn ör­ugg­ur staður í Úkraínu leng­ur. En að vera svo ósvíf­inn að fremja svo kaldrifjað morð. Það þarf að finna morðingj­ann,“ sagði í færslu borg­ar­stjór­ans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×