Innlent

Löng bíla­röð á leiðinni úr bænum

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Löng röð bíla hefur myndast á leiðinni út úr borginni.
Löng röð bíla hefur myndast á leiðinni út úr borginni. Vísir

Unnið er að því að mála vegi á Hellisheiði og mega tilvonandi sumarbústaðar- og tjalddveljendur bíða talsvert á leið þeirra suður á land. Löng bílaröð hefur myndast á Hellisheiðinni.

Á vef Vegagerðarinnar segir að málningarbíllinn verði á ferðinni í dag á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi framhjá Rauðavatni, Hellisheiði og Hveragerði og að hann fari hægt yfir. Ökumenn eru varaðir við því að raðir geti myndast við einbreiðu kaflana sem rættist eins og sjá má á myndunum.„Vegfarendur eru vinsamlegast beðnir um að aka um með gát og sýna tillitssemi og umfram allt þolinmæði,“ segir á vef Vegagerðarinnar.

G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir að mála þurfi alla vegi og að það verði alltaf tafir þegar ráðist er í slíkar aðgerðir.

„Ég hugsa að það sé bara minni umferð í hádeginu á laugardegi en oft annars,“ segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×