Erlent

Ljóst að annað á­fall mun dynja yfir í fram­tíðinni

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Ungur farþegi bíður eftir að komast um borð í flugvél sem fór ekki í loftið á réttum tíma í Mílanó á Ítalíu í gær.
Ungur farþegi bíður eftir að komast um borð í flugvél sem fór ekki í loftið á réttum tíma í Mílanó á Ítalíu í gær. AP Photo/Luca Bruno

Umfangsmikil kerfisbilun, sem sérfræðingar hafa lýst sem mesta tækniáfalli fyrr og síðar, heldur áfram að valda miklum usla, rúmum sólarhring eftir að hennar varð fyrst vart. Hakkarar eru byrjaðir að herja á þá sem urðu fyrir truflunum. Netöryggissérfræðingur telur að frekari, sambærileg tækniáföll séu óumflýjanleg.

Þó að kerfi og tölvur séu víðast hvar komin í lag á flugvöllum skellur nú á holskefla ferðamanna sem ekki komust leiðar sinnar í gær vegna bilunarinnar. Fram kemur í fréttavakt BBC að um fimmtíu þúsund breskir ferðamenn hafi vaknað á hrakhólum í morgun og í morgun hafði 45 flugferðum þegar verið aflýst til eða frá breskum flugvöllum.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir iðnaðarráðherra segir mikilvægt að draga lærdóm af atvikinu.

„Við erum auðvitað á varðbergi, við erum með gríðarlega öfluga aðgerðaáætlun í netöryggismálum. Við erum á varðbergi gagnvart því að tæknin er farin að hafa meiri áhrif á daglegt líf og sérstaklega þegar hún bregst.“ 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.Vísir/Vilhelm

Innt eftir því hvort hún taki undir áhyggjur af gríðarlegum ítökum fárra tæknirisa í daglegu lífi, eins og bilunin í gær sýni, segir Áslaug að ekki megi láta atvikið fæla okkur frá því að taka þátt í mikilvægum tækniumbótum.

„Á sama tíma á þessum markaði eins og öðrum er samkeppni gríðarlega mikilvæg og mikilvægt að fólk sé líka með varaplön og viðbragðsáætlanir.“

Crowdstrike, fyrirtækið sem ber höfuðábyrgð á biluninni, hefur ítrekað beðið heimsbyggðina afsökunar síðan í gær. Forstjórinn varaði við því í morgun að svipahrappar gætu nýtt sér neyð þeirra sem leita þurfa til fyrirtækisins vegna bilunarinnar. Netöryggissérfræðingar hjá Öryggisstofnun Ástralíu hafa jafnframt varað við annarri bylgju truflana vegna hakkara, sem sendi út falskar öryggislausnir fyrir hönd CrowdStrike.

Magni Sigurðsson, fagstjóri yfir atvikum og meðhöndlun hjá CERT-IS, segir netöryggissveitina enn fylgjast vel með þróun mála hér á landi. Engar frekar tilkynningar hafa borist síðan í gær.

„En jú, vissulega er þetta áhyggjuefni,“ segir Magni.

Þetta er ekki í síðasta sinn sem tækniáfall af þessari stærðargráðu dynur yfir okkur? 

„Nei, því miður þá held ég að þetta sé ekki í síðasta skipti sem við sjáum svona. En vonandi ekki af þessari sömu stærðargráðu.“


Tengdar fréttir

Mögulega mistök eins forritara

For­stjóri net­öryggis­fyrir­tækisins Syndis segir að stór­tækt hrun tölvu­kerfa í dag sé senni­lega stærsta tækni­á­fall sem heimurinn hafi nokkurn tímann séð. Um­hugsunar­vert sé að sam­fé­lög hafi sett öll eggin í sömu körfuna þegar kemur að hug­búnaði og mögu­lega hafi mis­tök eins starfs­manns haft keðju­verkandi á­hrif um allan heim.

Komust ekki inn á net­banka vegna bilunar

Tímabundin bilun í tölvukerfum hjá Reiknistofu bankanna orsakaði truflanir á virkni Aur-appsins og bankaþjónustu Auðar. Báðar fjármálaþjónusturnar eru reknar af Kviku og áttu viðskiptavinir Auðar um tíma erfitt með að komast inn í netbanka.

„Við vorum bara eins og blindur köttur“

Flugsamgöngur, greiðslukerfi og sjónvarpsútsendingar lágu niðri þegar algjört hrun varð í tölvukerfum Microsoft í dag. Tekið gæti talsverðan tíma að vinda ofan af afleiðingum bilunarinnar á heimsvísu, sem hafði einnig áhrif á Íslandi. Kerfi Landsbankans, allra bókasafna landsins og húðmeðferðarstofu í Vegmúla lágu niðri um tíma í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×