Enski boltinn

Ís­lendingar aftur til Eng­lands: Hver er næstur?

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Willum Þór er dýrasti leikmaður sem nokkurt lið í ensku C-deildinni hefur keypt.
Willum Þór er dýrasti leikmaður sem nokkurt lið í ensku C-deildinni hefur keypt. Birmingham City

Undanfarin ár hafa ekki margir íslenskir leikmenn spilað í Englandi. Regluverk ensku deildanna eftir Brexit og fleira hefur haft áhrif en nú eru Íslendingar allt í einu farnir að fara í hrönnum til Englands til að spila fótbolta. Stóra spurningin er, hver er næstur?

Undanfarna áratugi hefur Ísland haldið ágætis tengingu við enska knattspyrnu og margir af okkar bestu leikmönnum spilað þar. Nægir að nefna Eið Smára Guðjohnsen, Gylfa Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson. Sá síðastnefndi verður einn af þremur Íslendingum í ensku B-deildinni á komandi leiktíð. 

Sem stendur er Hákon Rafn Valdimarsson eini Íslendingurinn í ensku úrvalsdeild karla en það verður að koma í ljós hversu mikið markvörðurinn spilar hjá Brentford. Mögulega verður hann lánaður frá félaginu. Kvennamegin má reikna með að Dagný Brynjarsdóttir verði í stóru hlutverki í liði West Ham United en hún er að snúa til baka eftir að hafa átt sinn annað barn.

Í B-deild karla verða þrír leikmenn en ásamt Jóhanni Berg verða Skagamennirnir Arnór Sigurðsson og Stefán Teitur Þórðarson í deildinni. Arnór er að fara inn í sitt annað tímabil með Blacburn Rovers á meðan Stefán Teitur gekk í raðir Preston North End á dögunum.

Í C-deildinni er svo Willum Þór Willumsson en Birmingham City sótti hann á metfé en liðið ætlar sér beint aftur upp eftir fall úr B-deildinni síðasta vor.

Mosfellingurinn Jason Daði Svanþórsson er svo fulltrúi Íslands í D-deildinni en hann gekk í raðir Grimsby Town frá Breiðabliki á dögunum.

Vísir veltir því fyrir sér hvaða Íslendingur verður næstur að færa sig um set og semja við lið á Englandi? Fer sá leikmaður í ensku úrvalsdeildina eða harkið í neðri deildum. Tekið skal fram listinn er eingöngu til gamans gerður og ekki byggður á neinu öðru en almennu skemmtanagildi.

Ingibjörg Sigurðardóttir 

Er samningslaus og ætti að henta enska boltanum gríðarlega vel. Harðjaxl af gamla skólanum sem kallar ekki allt ömmu sína.Vísir/Anton Brink

Jón Dagur Þorsteinsson

Var í akademíu Fulham á sínum tíma og skoraði sigurmark Íslands gegn Englandi á Wembley. Er eflaust á blaði hjá nokkum liðum sem vantar duglegan vængmann sem getur tekið menn á.Richard Pelham/Getty Images

Hildur Antonsdóttir 

Er einnig samningslaus. Spilaði eins og engill á miðju Íslands í sigrunum á Þýskalandi og Póllandi. Gríðarlega sterkur miðjumaður sem getur hlaupið teig í teig allan liðlangan daginn.Christof Koepsel/Getty Images

Hákon Arnar Haraldsson 

Ótrúlegur fótboltamaður sem náði þó ekki að sýna sínar bestu hliðar á sínu fyrsta tímabili hjá Lille í Frakklandi. Takist honum það á komandi leiktíð gætu lið eins og Brighton & Hove Albion eða Crystal Palace komið með stóru seðlana.Mateusz Porzucek/Getty Images

Sævar Atli Magnússon

Ef flett er upp orðinn duglegur í orðabók þá kemur upp mynd af Sævari Atla Magnússyni. Hann er líka mjög tryggur og það þarf mikið til að losa hann frá Lyngby í Danmörku. Hann gæti þó verið til í ævintýri og ef rétt lið í B- eða jafnvel C-deildinni (Wrexham eða Peterborough United) myndi banka upp á væri erfitt að segja nei.@LyngbyBoldklub

Elísabet Gunnarsdóttir (Þjálfari)

Gerði frábæra hluti í Svíþjóð og var orðuð við kvennalið Aston Villa nýverið. Umboðsstofa hennar virðist hafa góð tengsl á Englandi og hver veit nema hún endi þar fyrr en seinna.@elisabetgunnarz



Fleiri fréttir

Sjá meira


×