Erlent

Joe Biden dregur fram­boð sitt til baka

Eiður Þór Árnason skrifar
Joe Biden hefur átt erfitt uppdráttar eftir slæma frammistöðu sína í sjónvarpskappræðum sem hann átti við Donald Trump í lok júní.
Joe Biden hefur átt erfitt uppdráttar eftir slæma frammistöðu sína í sjónvarpskappræðum sem hann átti við Donald Trump í lok júní. Getty/Justin Sullivan

Joe Biden Bandaríkjaforseti og forsetaefni Demókrata hyggst draga framboð sitt til endurkjörs til baka. Vaxandi fjöldi flokksmanna hefur á síðustu vikum kallað eftir því að Biden stígi til hliðar. Hann vill að Kamala Harris varaforseti taki við keflinu en um þrír og hálfur mánuður eru nú til kosninga.

Mótframbjóðandinn Donald Trump hefur sótt í sig veðrið að undanförnu og gáfu kannanir og margar kosningaspár til kynna að hann myndi hafa betur gegn Biden eins og sakir standa. Halla fór undan fæti hjá Biden eftir kappræður hans við Donald Trump, forsetaefni Repúblikanaflokksins í lok júní þar sem forsetinn var af mörgum talinn hafa gefið áhyggjum af aldri hans og hreysti byr undir báða vængi. Biden verður 82 ára á þessu ári en forsetakosningar fara fram í Bandaríkjunum þann 5. nóvember næstkomandi.

Vilji með þessu betur þjóna landinu

„Það hefur verið mesti heiður lífs míns að gegna embætti forseta ykkar. Og þó að það hafi verið ætlun mín að sækjast eftir endurkjöri, tel ég að það sé í þágu flokks míns og lands að ég víki og einbeiti mér eingöngu að því að sinna skyldum mínum sem forseti það sem eftir er af kjörtímabili mínu,“ segir Joe Biden í yfirlýsingu sem birtist á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter. Hann hefur fram að þessu opinberlega gefið lítið fyrir ákall um að hann stígi til hliðar. 

„Ég mun ræða nánar við þjóðina síðar í vikunni um ákvörðun mína. Í bili vil ég þakka öllum þeim sem hafa lagt svo hart að sér til að sjá mig endurkjörinn. Ég vil þakka Kamala Harris varaforseta fyrir að vera ótrúlegur félagi í öllu þessu starfi. Og leyfið mér að þakka bandarísku þjóðinni fyrir þá trú og traust sem þið hafið sýnt mér. Ég trúi því í dag eins og ég hef alltaf gert: að það er ekkert sem Bandaríkin geta ekki gert - þegar við gerum það saman.“

Allt útlit er fyrir að Kamala Harris, fyrrum saksóknari og öldungadeildarþingmaður frá Kaliforníu muni mæta Trump í nóvember.AP/Patrick Semansky

Verið hans besta ákvörðun að velja Harris

Ekki liggur fyrir hver mun taka við af Biden sem forsetaefni Demókrataflokksins fyrir kosningarnar í nóvember en nafn Kamala Harris varaforseta hefur verið mest nefnt í þeim efnum. Bandaríkjaforseti segist styðja þær hugmyndir heilshugar. 

„Fyrsta ákvörðun mín sem flokksframbjóðandi árið 2020 var að velja Kamala Harris sem varaforseta minn. Og það hefur verið besta ákvörðun sem ég hef tekið,“ skrifar Biden í færslu á X.

„Í dag vil ég lýsa yfir fullum stuðningi mínum við að Kamala verði tilnefnd forsetaefni flokksins okkar í ár. Demókratar - það er kominn tími til að koma saman og sigra Trump.“

Flokksfulltrúar demókrata koma saman á flokksþingi dagana 19. til 22. ágúst næstkomandi þar sem frambjóðendaefni þeirra verður samþykkt. Allar líkur eru nú á því að Kamala Harris verði þar útnefnd með formlegum hætti.

Trump styrkt sig á sama tíma og fólk hafði auknar áhyggjur af Biden

Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði sagði fyrir tilkynningu Biden í dag að vatnaskil hafi orðið í forsetakapphlaupinu á síðustu tveimur vikum.

„Fyrst auðvitað með afleitri frammistöðu Joes Biden í kappræðunum, og svo auðvitað í kjölfar tilræðisins við Donald Trump. Hann hefur komið út úr því alveg óhemju öflugur. Það hefði varla verið hægt að skrifa þetta handrit hagfelldara honum.“

Um vika er síðan byssumaður reyndi að ráða Trump af dögum á stuðningsmannafundi frambjóðandans í Pennsylvaníu. Hann hélt sinn fyrsta stuðningsmannafund frá tilræðinu í gær sem var af mörgum talið hafa styrkt stöðu Trumps gagnvart Biden.

Fréttin hefur verið uppfærð. 


Tengdar fréttir

Ó­hemju öflugur Trump hafi sigurinn í hendi sér

Eins og sakir standa á Joe Biden ekki möguleika á að sigra Donald Trump í bandarísku forsetakosningunum, að mati stjórnmálafræðings. Trump hélt sinn fyrsta kosningafund frá banatilræðinu við hann í gær, og þakkaði guðlegri forsjá fyrir að vera á lífi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×