Golf

Schauffele sigldi sigrinum heim

Siggeir Ævarsson skrifar
Xander Schauffele lyftir bikarnum eftir sigurinn í dag
Xander Schauffele lyftir bikarnum eftir sigurinn í dag Vísir/EPA-EFE/ROBERT PERRY

Hinn bandaríski Xander Schauffele stóð uppi sem sigurvegari á opna breska meistaramótinu í golfi sem lauk í dag en leikið var við töluvert krefjandi aðstæður í Skotlandi um helgina.

Schauffele lauk keppni á níu höggum undir pari, tveimur höggum á undan Justin Rose og Billy Horschel. Þrátt fyrir að staðan hafi verið nokkuð jöfn meðal efstu manna var sigur Schauffele ekki í mikilli hættu en hann lék frábærlega í gær í úrhellis rigningu og hífandi roki.

Schauffele, sem er 37 ára, hafði fyrir árið í ár aldrei unnið stórmót en er nú búinn að vinna tvö á sama árinu sem hefur ekki gerst síðan 2018 þegar Brooks Koepka gerði það. Téður Koepka endaði í 43. sæti á mótinu.

Heimamenn vonuðust eflaust margir til að Justin Rose myndi ná að knýja fram sigur í dag en síðasti Englendingurinn til að vinna mótið var Nick Faldo árið 1992. Þó hafa tveir þegnar bresku krúnunnar unnið mótið í millitíðinni, báðir frá N-Írlandi. Darren Clarke árið 2011 og Rory McIlroy árið 2014. Þrír af síðustu fjórum sigurvegurum mótsins hafa allir komið frá Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×