Erlent

Saka Apple um fá­læti þegar kemur að barnaníðsefni

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Barnaverndarsamtök hafa verulegar áhyggjur af því hvernig gervigreind er nú notuð til að framleiða barnaníðsefni.
Barnaverndarsamtök hafa verulegar áhyggjur af því hvernig gervigreind er nú notuð til að framleiða barnaníðsefni. Getty

Stærstu barnaverndarsamtök Bretlands, National Society for the Prevention of Cruelty to Children (NSPCC) segir stórfyrirtækið Apple standa sig afar illa í því að bera kennsl á og tilkynna um barnaníðsefni.

Árið 2023 tilkynnti Apple um samtals 267 möguleg tilvik barnaníðsefnis í heiminum öllum til National Center for Missing & Exploited Children (NCMEC) í Bandaríkjunum en gögn sýna að Apple kom við sögu í 337 lögreglumálum á Englandi og Wales á tímabilinu apríl 2022 til mars 2023.

Á sama tíma tilkynnti Meta um 30,6 milljón möguleg tilvik og Google um 1,47 milljón tilvik.

Bandarísk tæknifyrirtæki verða að tilkynna mögulegt barnaníðsefni til NCMEC en NCMEC fer yfir öll mál sem berast og vísa þeim áfram til viðkomandi löggæsluyfirvalda, alls staðar í heiminum.

Þegar Guardian leitaði viðbragða vegna málsins svaraði talsmaður Apple með því að benda á yfirlýsingu frá því í ágúst í fyrra þar sem greint var frá því að fyrirtækið hefði fallið frá því að skanna allar myndir sem hlaðið væri upp í iCloud fyrir barnaníðsefni.

Var ákvörðunin tekin með það að leiðarljósi að forgangsraða öryggi og friðhelgi notenda þjónustunnar.

Umrætt forrit, neuralMatch, hefði skannað allar myndir sem notendur færðu yfir í iCloud og borið saman við þekktar barnaníðsmyndir. Samtök sem berjast fyrir friðhelgi einkalífsins á netinu andmæltu fyrirætlununum og fallið var frá þeim, sem var harðlega gagnrýnt af samtökum um velferð barna.

Barnaverndarsamtök hafa einnig verulegar áhyggjur af áætlunum Apple um að setja á markað nýja gervigreind en vitað er að gervigreind er nú þegar notuð til að framleiða barnaníðsefni og þjálfuð á raunverulegum myndum og myndskeiðum af ofbeldi gegn börnum.

Guardian greindi meðal annars frá því í júní síðastliðnum að ofbeldismenn væru að nota gervigreind til að búa til nýtt efni með uppáhalds fórnarlömbum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×