Golf

Nýi meistarinn viður­kenndi að hafa tapað fyrir Jordan

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Michael Jordan og Xander Schauffele mættust á dögunum á golfvellinum.
Michael Jordan og Xander Schauffele mættust á dögunum á golfvellinum. Samsett/Getty&EPA

Bestu kylfingar heims hafa flestir kynnst því að keppa við Michael Jordan á golfvellinum. Nýjasti meistarinn á sögu af slíku og útkoman var ekki honum í hag.

Bandaríski kylfingurinn Xander Schauffele vann Opna breska meistaramótið í golfi í gær og hefur þar með unnið tvo af fjórum risamótum ársins.

Schauffele vann PGA-meistaramótið í maí þegar hann lék á 21 höggi undir pari en að þessu sinni dugði honum að leika á níu höggum undir pari. Hann endaði tveimur höggum á undan Billy Horschel og Justin Rose.

Eftir sigurinn í gær kom fram myndband með Schauffele þar sem hann fór yfir samskipti sín við NBA goðsögnina Michael Jordan. CBS sýndi myndbandið á miðlum sínu.

Schauffele viðurkenndi þar að hann hafi tapað á móti Jordan á dögunum og það var í golfi en ekki einn á einn í körfubolta.

Jordan er mikill golfáhugamaður og spilaði íþróttina grimmt á meðan hann var enn að spila körfubolta. Jordan er líka mikill keppnismaður og þekktur fyrir að leggja pening undir á golfvellinum.

Fór að „tala skít“ við Jordan.

Schauffele sagði söguna af leik sínum við Jordan. Allt hafi litið vel út framan af.

Vandamál Schauffele hafi byrjað þegar hann fór að „tala skít“ við Jordan.

Schauffele lýsti því þegar Jordan hætti þá að tala við hann á hringnum, setti upp mikinn einbeitingarsvip og náði síðan hverjum fuglinum á fætur öðrum.

„Ég gerði mitt besta en hann vann mig sem er vandræðalegt,“ sagði Schauffele en má sjá þetta hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×