Enski boltinn

Sá leikja­hæsti tekur skóna ó­vænt fram á nýjan leik

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Gareth Barry í einum af sínum 653 leikjum í ensku úrvalsdeildinni.
Gareth Barry í einum af sínum 653 leikjum í ensku úrvalsdeildinni. Vísir/getty images

Hinn 43 ára gamli Gareth Barry hefur óvænt tekið fram skóna á nýjan leik og mun spila með áhugamannaliðinu Hurstpierpoint á komandi leiktíð. Um er að ræða lið sem spilar í 11. deild enska deildarkerfisins.

Miðjumaðurinn Barry er áhugafólki um enska knattspyrnu vel kunnugur en ferill hans spannar 22 ár. Lék hann með Aston Villa, Manchester City, Everton og West Bromwich Albion. Ásamt því að leika 53 A-landsleiki fyrir England þá er hann leikjahæsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar með 653 leiki.

Fyrr í dag tilkynnti áhugamannaliðið Hurstpierpoint FC að Barry hefði tekið skóna af hillunni og væri orðinn leikmaður liðsins. Um er að ræða lið frá samnefndum bæ ekki langt frá Lundúnum. Liðið er leikur í svokallaðri héraðsdeild sem er hluti af 11. deild enska deildarkerfisins.

Barry hefur haldið sér við og virkar í hörku standi og sýndi að lengi lifir í gömlum glæðum. Það er ekki búist við því að hann verði mikið með á undirbúningstímabilinu en forráðamenn félagsins reikna með að Barry spili sinn fyrsta leik í september.

„Hann kom á æfingu og elskaði okkur. Ég held að hann verði ekki með okkur í hverri viku en þetta eru frábær félagaskipti fyrir okkur og hann mun stækka prófílinn okkar,“ sagði Dudley Christensen, framkvæmdastjóri aðalliðsins sem og formaður félagsins.

„Hann má gera það sem hann vill og spilar þar sem honum sýnist en ég býst við að hann spili í stöðu varnartengiliðs og verndi vörnina,“ bætti Dudley við.

Barry kemur til félagsins í gegnum Michael Standing, fyrrverandi umboðsmanns síns. Sá er í dag þjálfari Hurstpierpoint FC.

„Gareth er tengdur félaginu þökk sé góðum vini sínum og þjálfara liðsins, Michael Standing, svo það var borðliggjandi að fá hann til liðs við félagið. Gæði hans á æfingum hafa verið hreint út sagt ótrúleg og við gætum vart verið spenntari að sjá hann klæðast treyjunni á Fairfield-vellinum síðar á tímabilinu,“ segir í tilkynningu félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×