Innlent

Sóttu veikan göngumann á Horn­strandir

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út upp úr klukkan tólf í dag.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út upp úr klukkan tólf í dag. Vísir/Vilhelm

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti veikan göngumann á Hornstrandir á tíunda tímanum í morgun. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús á Ísafirði.

Hreggviður Símonarson, starfsmaður á bakvakt aðgerðarsviðs Landhelgisgæslunnar, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu.

Hreggviður segir að ekki hafi verið um alvarleg veikindi að ræða. Maðurinn sé í skoðun á sjúkrahúsinu á Ísafirði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×