Íslenski boltinn

„Þegar mamma er glöð, þá eru allir glaðir“

Aron Guðmundsson skrifar
Jökull Andrésson er mættur aftur í uppeldisfélag sitt Aftureldingu á láni frá enska félaginu Reading.
Jökull Andrésson er mættur aftur í uppeldisfélag sitt Aftureldingu á láni frá enska félaginu Reading. Vísir/Sigurjón

Það eru margir sem ráku upp stór augu þegar að Aftur­elding greindi frá því að mark­vörðurinn Jökull Andrés­son kæmi á láni til fé­lagsins frá enska liðinu Rea­ding. Þar með tekur hann slaginn með liðinu í Lengju­deildinni út tíma­bilið. Það eru margir á því að Jökull gæti spilað á hærra getu­stigi. Hann elskar hins vegar pressuna sem fylgir því að vera kominn aftur í upp­eldis­fé­lagið í Mos­fells­bæ.

Þrátt fyrir að vera að­eins 22 ára hefur Jökull marga fjöruna sopið á Eng­landi þar sem að hann hefur yfir að skipa leikjum í ensku C- og D-deildinni. Það fylgir því pressa að snúa aftur heim á þessum tíma­punkti og það í Lengju­deildina því ó­hætt er að segja að ensku deildirnar séu hærra skrifaðar.

Finnurðu fyrir pressunni sem fylgir komu þinni hingað? Að það sé vænst mikils af þér?

„Ég elska pressuna. Það er það sem að við viljum,“ svarar Jökull og bætir við. „Ég er hérna til­búinn að standa mig fyrir framan alla. Fyrir framan bæinn minn. Það er mín á­skorun að koma þessu liði upp í Bestu deildina. Ég ætla að gera það á minn besta hátt. Hvernig sem er, til að hjálpa þeim. Það er alltaf betra að hafa smá pressu. Ég er svo spenntur fyrir þessu.“

Telur þetta rétta skrefið

Það voru fleiri kostir í stöðunni fyrir Jökul hér heima, meðal annars í bestu deildinni en um­hverfið og heildar­pakkinn hjá Aftur­eldingu sá til þess að Jökull telur þetta rétta skrefið á þessum tíma­punkti.

„Við töluðum við mörg lið í Bestu deildinni. En ein­hvern vegin komumst við bara að því sam­komu­lagi, bara með það til hlið­sjónar að hér í Mos­fells­bæ er mín fjöl­skylda sem og bara hvað væri best fyrir mig í þessari stöðu eftir að hafa verið að glíma við meiðsli í tvö ár, að það væri best að koma hingað í Aftur­eldingu.

Auð­vitað langaði mig alveg líka að reyna fyrir mér í Bestu deildinni en þessi láns­samningur til Aftur­eldingar var ein­hvern veginn full­kominn fyrir mig núna. Það hvernig Maggi þjálfari er búinn að setja upp planið. Ég ætla bara að prófa þetta. Mig langar að sjá hvernig þetta er. Þetta er í fyrsta skipti í lífi mínu, fyrir utan það þegar að ég var í fimmta flokki, sem ég er að fara spila á Ís­landi. Mér fannst það bara rétt að gera það fyrir fé­lagið sem þetta allt saman byrjaði á.“

Allir í skýjunum

Jökull og kærasta hans Thelma Líf Theodórsdóttir eiga von á sínu fyrsta barni saman í september næstkomandi.Mynd: Jökull @Instagram

„Ég skal bara segja þér það að konan hefur aldrei verið eins jafn glöð í lífi sínu. Að við séum komin hingað. Við eigum von á okkar fyrsta barni núna 3.septem­ber. Dóttir á leiðinni. Við erum með alla hérna í Mos­fells­bæ. Mamma gæti ekki verið glaðari með þetta. Þegar að mamma er glöð. Þá eru allir glaðir. Við erum mjög á­nægð núna. Ég get ekki beðið eftir því að byrja. Það er fyrsti leikur núna á fimmtu­daginn á móti Kefla­vík. Byrjum bara þessa veislu.“

Förum í Bestu deildina

Jökull nefnir Magnús Má Einars­son, þjálfara Aftur­eldingar, sem hafði mikið að segja um þá á­kvörðun Jökuls að snúa aftur heim.

„Auð­vitað ýtti Aftur­elding við þessu. Maggi þjálfari. Ég verð að segja það. Ég ber svo ó­trú­lega mikla virðingu fyrir honum. Hann er búinn að láta mér líða rosa­lega vel með það hvað hann getur hjálpað mér með.“ 

Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar.Vísir/Sigurjón

„Hvernig hann sér þennan tíma minn hjá fé­laginu fyrir sér. Hvað hann vill gera fyrir mig. Þá hugsaði ég með mér: „Það er gæi hérna sem er til­búinn til að gera gjör­sam­lega allt fyrir mig. Af hverju ekki?“ Þetta er Aftur­elding. Klúbburinn sem ég ólst upp í. Förum í Bestu deildina.“

Verið á Englandi frá 13 ára aldri

Jökull verður því hér heima á Ís­landi út yfir­standandi tíma­bil. Hann á innan við ár eftir af samningi sínum hjá Rea­ding en hvað tekur við í haust þegar að tíma­bilinu er lokið hér heima?

Jökull í leik með Morecambe á sínum tíma í enska deildarbikarnum.Vísir/Getty

„Þetta er sama spurningin og ég hef verið að spyrja sjálfan mig að. Ég hef verið á mála hjá Rea­ding í rúm tíu ár núna. Flutti út til Eng­lands þegar að ég var þrettán ára. Það hefur gengið ó­trú­lega val. Ég hef spilað mikið undir merkjum Rea­ding en verið sendur á láni í ensku C og D deildina og hef leikið þar fullt af leikjum.

Ég er bara ekki viss hvað fram­tíðin ber í skauti sér. Er bara að skoða val­mögu­leikana. Kannski er kominn tími á að prófa eitt­hvað nýtt. Fara kannski til Skandinavíu eða eitt­hvað svipað. En á sama tíma, þegar að við verðum búnir að koma Aftur­eldingu upp í Bestu deildina, ætla ég að sýna þessum gæjum þarna hjá Rea­ding hvað maður getur. Ég er aldrei hræddur við á­skoranir. Hef aldrei verið það og ætla bara að sýna þessum gaurum hvað maður getur.“

En gæti það farið svo að Jökull verði lengur á Ís­landi heldur en út yfir­standandi tíma­bil?

„Það fer eftir ýmsu. Sjáum bara hvernig þetta tíma­bil fer. Sjáum hvernig manni líður. Ég hef verið á Eng­landi í rosa­lega langan tíma. Maður saknar fjöl­skyldu sinnar og vina. En á sama tíma ræður fót­boltinn ein­hvern veginn alltaf. Maður er svo ást­fanginn af fót­boltanum. Það getur allt gerst. Eina sem kemst að í huga mínum núna er þessi leikur á fimmtu­daginn ef ég á að vera hrein­skilinn.“

Jökull dvaldi um tíma hjá enska félaginu Carlisle United á lániVísir/Getty

Vill fara að festa rætur

Eftir að hafa verið á láni hjá mis­munandi fé­lögum undan­farin ár er farið að bera á löngun hjá Jökli að festa rætur.

„Það er hár­rétt hjá þér. Ég farið á láni til fjögurra mis­munandi liða síðustu tvö til þrjú ár. Núna er ég orðinn tuttugu og tveggja ára. Ekkert eld­gamall. Þegar að maður er ní­tján til tuttugu ára er það alveg ó­trú­lega gaman að fara á láni eitt­hvert. En þegar að maður hefur farið á láni núna trekk í trekk kemur upp þörf til að festa rætur. Sér­stak­lega núna þegar að það er barn á leiðinni. Það væri best fyrir okkur fjöl­skylduna. Ég er svo sannar­lega að leita að stað sem ég sé sem heimili mitt. Staðurinn minn.“

Viðtalið við Jökul í heild sinni má sjá hér fyrir neðan: 

Klippa: Jökull óvænt kominn aftur heim: „Elska pressuna“



Fleiri fréttir

Sjá meira


×