Innlent

Aukin hætta á eld­gosi innan bæjarmarka Grinda­víkur

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Veðurstofan hefur uppfært hættumat vegna mögulegs eldgoss á Sundhnúksgígaröðinni. Auknar líkur eru taldar á að gossprunga opnist innan Grindavíkur.
Veðurstofan hefur uppfært hættumat vegna mögulegs eldgoss á Sundhnúksgígaröðinni. Auknar líkur eru taldar á að gossprunga opnist innan Grindavíkur. Vísir/Vilhelm

Líkur eru á nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni á næstu tveimur til þremur vikum. Hættustig hefur verið hækkað í uppfærðu hættumati Veðurstofunnar. 

Í uppfærðu hættumati Veðurstofunnar segir að landris haldi áfram og kvikusöfnun undir Svartsengi hafi verið nokkuð stöðug ef horft er til síðustu vikna. Samkvæmt líkanreikningum sé líklegast að um 16 milljónir rúmmetra hafi safnast saman, en talið er að um 13 til 19 milljón rúmmetra þurfi af kviku til að þrýstingurinn valdi eldgosi.

Hættustigið hækkað

Veðurstofan hefur uppfært hættumat í ljósi þess að búast megi við nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á næstu vikum. Hættustig hefur verið hækkað á öllum svæðum, nema svæði 7, og gildir hættumatið til 30. júlí að óbreyttu.

Uppfærða hættumatið. Mikil hætta er á gosopnun á svæði 3 og svæði 4. Svæði 4 er innan bæjarmarka Grindavíkur.Veðurstofa Íslands

Tvær sviðsmyndir

Veðurstofan hefur uppfært þær sviðsmyndir sem taldar eru líklegastar ef til eldgoss kemur. Báðar eru taldar álíka líklegar.

Sviðsmynd 1 gerir ráð fyrir eldgosi með upptök milli Stóra-Skógfells og Sundhnúks. Það yrði svipuð staðsetning og eldgos sem hófust 18. desember 2023, 8. febrúar 2024, 16 mars og 29. maí 2024.

Fyrirvarinn að því gosi yrði mjög stuttur, innan við 30 mínútur.

Sviðsmynd 2 gerir ráð fyrir eldgosi með upptök sunnan við Sundhnúk, við Hagafell eða suður af Hagafelli. Staðsetningin yrði svipuð og í eldgosinu sem hófst 14. janúar 2024.

Líklega yrði fyrirvari þess eldgoss lengri en í sviðsmynd 1, en óvíst er hversu mikið. Lengri fyrirvarinn ræðst af því hversu langt til suðurs kvikan kemur til með að brjóta sér leið áður en hún leitar upp á yfirborðið.

Í sviðsmynd 2 þarf að gera ráð fyrir þeim möguleika að hraun geti komið upp innan Grindavíkur. Í því tilfelli er talið líklegast að gossprunga myndi fyrst opnast norðan við bæinn áður en sprunga opnast innan bæjarmarkanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×