Viðskipti innlent

Gústi Jó ráðinn markaðs­stjóri Vöruverndar

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Ágúst Jóhannsson hefur mikla reynslu af sölu- og markaðsmálum.
Ágúst Jóhannsson hefur mikla reynslu af sölu- og markaðsmálum.

Ágúst Jóhannsson handboltaþjálfari, gjarnan þekktur sem Gústi Jó, hefur verið ráðinn sem sölu- og markaðsstjóri hjá Vöruvernd.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vöruvernd.

Ágúst hefur starfað síðustu átta ár sem sölu-og markaðsstjóri Kerfis fyrirtækjaþjónustu en er einnig einn reyndasti handboltaþjálfari landsins. Hann hefur meðal annars þjálfað í Noregi, Danmörku og Færeyjum en hefur síðustu ár þjálfað kvennalið Vals og verið aðstoðarþjálfari A-landsliðs kvenna.

Vöruvernd sérhæfir sig í lausnum sem tengjast þjófavörnum í verslunum svo sem vöruverndarhliðum, þjófavörnum, merkingum og myndavélakerfum. 

Ágúst mun hefja störf þann 1. ágúst næstkomandi og verður hluthafi í fyrirtækinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×