Að forðast að háma í okkur eftir vinnu Rakel Sveinsdóttir skrifar 31. júlí 2024 07:00 Heill kexpakki getur hæglega horfið ofan í okkur ef við borðum ekkert yfir vinnudaginn (því það er svo brjálað að gera!) og erum síðan orðin svo svöng eftir vinnu að við ráðum ekki við okkur og borðum nánast hvað sem er. Og þá mikið af því! Vísir/Getty Sinn er siðurinn í hverju landi, en á Íslandi er almennt talað um morgunmatinn sem eina mikilvægustu máltíð dagsins.
Sem þó mjög margir sleppa. Næst er það áherslan á að borða hollt og reglulega yfir daginn. Sem þó mörgum tekst sjaldnast. Því já, stundum eru vinnudagarnir okkar einfaldlega þannig að okkur finnst við hafa of mikið að gera til að borða. Höfum ekki tíma. Finnum ekki fyrir svengdinni. Hám-borðum þegar við loksins getum borðað. Úff…. er nema von að líkaminn upplifi sig undir álagi og uppþemdur. Staðreyndin er samt sem áður sú að ef við gefum okkur ekki tíma til að borða yfir vinnudaginn, er svengdin einfaldlega orðin svo mikil eftir vinnu að við ráðum ekki við okkur þegar við loksins komumst í mat. Heill kexpakki? Ekkert mál... Og á endanum verður þessi hringrás að vana! Allt snýst þetta þó um að finna þennan gullna meðalveg sem gerir okkur kleift að fylgja eftir þeirri rútínu sem við viljum helst fylgja eftir. Sem sjaldnast felur þá í sér boð, bönn eða öfgafull markmið um lífstílsbreytingar. Auðvitað eru alls kyns ráð sem geta hjálpað okkur með matarræðið ef það er í rugli á löngum og álagsmiklum vinnudögum. Til dæmis að undirbúa máltíðina fyrirfram og taka með sér nesti, vera alltaf með smá próteinbar eða ávöxt við höndina (epli, banani), muna eftir vatnsbrúsanum (alltaf) og láta símann um að minna okkur á nokkra mínútna pásu yfir daginn til að koma einhverju góðu ofan í okkur. Og það eru líka alls kyns góð ráð til um það, hvernig við erum líkleg til að ná árangri og þeim markmiðum sem við setjum okkur. Margir sem eru hins vegar fastir í þessari hringrás að gleyma sér yfir daginn og háma síðan í sig alls konar eftir vinnu, segja erfiðast að muna eftir því að borða. Eða að muna eftir markmiðinu um að vilja borða. Já: Að muna eftir máltíðinni getur verið áskorun út af fyrir sig. Sem þó er það eina sem getur forðað okkur frá því að verða of svöng eftir vinnu. Hér eru nokkur góð ráð sem geta hjálpað okkur út úr vítahringnum: Settu þér raunhæft markmið: Þú ætlar að borða eitthvað yfir daginn, annað er of óhollt. Segðu vinnufélögunum frá þessu markmiði. Notaðu klukkuna í símanum til að minna þig á matarpásur. Vertu undirbúin með mat/máltíð/ávexti/nesti. Ekki ætla þér að muna eftir því að borða en eiga þá eftir að ákveða hvað. Farðu yfir það í huganum hvenær þér líður best eftir daginn: Hvað borðaðir þú þá og hvenær? Skrifaðu á blað markmiðið þitt og hvaða langtímaáhrif þú vilt sjá koma út úr því. Vertu með markmiðið þitt sýnilegt í vinnunni, til dæmis gula minnismiða sem þú skilur og eru ekki truflandi fyrir annað starfsfólk né viðskiptavini. Fáðu vinnufélaga í lið með þér (skiptast á pásum?) Haltu utan um markmið og árangur með því að skrá niður í bók (daglega, annan hvern dag eða vikulega). Hvaða dagar voru til dæmis bestir/árangursríkastir? Hvað einkenndi þessa daga? Lærðu að forðast gryfjurnar þínar Hrósaðu sjálfum þér fyrir góðan árangur; Að setja sjálfan sig í forgang er árangur út af fyrir sig.
Góðu ráðin Heilsa Tengdar fréttir Þrjú snilldarráð fyrir góð samskipti Góð samskipti eru alltaf lykilatriði. Hvort heldur sem er í leik eða starfi. Við viljum öll standa okkur sem best í góðum samskiptum en eigum það mögulega til að gleyma okkur. 12. janúar 2024 07:00 Andfúli vinnufélaginn og góð ráð Við erum andfúl á morgnana þegar að við vöknum en sem betur fer er það frá um leið og við höfum burstað tennurnar. Og þó. 19. ágúst 2022 07:01 Góð ráð fyrir lata starfsmenn Við eigum okkur öll okkar daga. Já, svona leti-daga. Mætum til vinnu og erum hálf löt allan daginn. Komum litlu í verk. Eigum erfitt með að einbeita okkur. Erum þreytt. Eða með hugann annars staðar. Sem betur fer, eru leti-dagarnir ekki viðvarandi. Daginn eftir mætum við til vinnu á ný, galvösk og brettum upp ermar. 12. júlí 2021 07:01 Hámarkstími fullorðinna í símanum og góð ráð Nú hafa Danir tekið af skarið og gefið út leiðbeiningar um símanotkun fullorðins fólks. Sem talin er geta verið heilsuspillandi ef notkunin nemur meira en þrjár klukkustundir á dag. 19. júní 2024 07:01 Góð ráð til að sporna við „ofhugsunum“ Að ofhugsa eða verja óendanlegum tíma í að greina hluti og kryfja þá er vandamál sem margir kannast við. Heilu dagarnir geta farið í þessar hugsanir, sem þó leiða oft ekki til neinna lausna. 31. mars 2021 07:00 Mest lesið Vonar að Icelandair sjái sóma sinn í að bæta fólki tjónið Neytendur Tryggja sér lóðir fyrir höfuðstöðvar á rúman milljarð Viðskipti innlent „Óumflýjanlegt“ kílómetragjald kynnt í vikunni Neytendur Gervigreindin: Píparinn öruggur en læknirinn ekki? Atvinnulíf Heimar kaupa umdeild hús á rúma sex milljarða Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið segir samrunann auka samkeppni Viðskipti innlent Fleiri hlutastörf: Ríkið greiðir nú þegar 75% launa sem mótframlag Atvinnulíf Fleiri hlutastörf: „Viltu vera memm?“ Atvinnulíf Ofurstinn flytur til Texas Viðskipti erlent Stjórnir Samkaupa og Heimkaupa undirrita samrunasamning Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindin: Píparinn öruggur en læknirinn ekki? Fleiri hlutastörf: „Viltu vera memm?“ Fleiri hlutastörf: Ríkið greiðir nú þegar 75% launa sem mótframlag Breytingar í framkvæmdastjórateymum oft nauðsynlegar Sjúkur í Downton Abbey og með unglingastæla á kvöldin Selfossvinir og afar sem velta milljörðum Hættu í megrun: „Það varð eiginlega allt vitlaust“ Að hringja sig inn veik á mánudögum Fermingarmyndin ekki til útflutnings Rauðu flöggin: Þú vilt ekki vinna fyrir svona stjórnanda Úrelt kerfi: „Jafnvel vitað fyrirfram að ráðningin verði kærð“ „Þau samtöl eru oft mjög erfið og jafnvel særandi fyrir umsækjanda“ „Í eitt skipti hringdum við í fréttaskot DV því fyrir það fengum við pening!“ Prakkarastrik loks opinberað: „Það leiðréttist hér með!“ „Alltaf hægt að sjá tækifæri og fleira gott í stöðunni“ „Að fyrirtæki líti inn á við áður en kolefnisjöfnun er keypt“ Það sem fáir fíla: Að þú setjir þig á of háan hest „Fullt af íslenskum fyrirtækjum í miklum vandræðum með þetta“ Forstjórinn sem saumar þjóðbúninginn öll mánudagskvöld Andlega uppsögnin: „Þetta er ekki sonur minn sko…“ „Eins og stundum vanti hvatann hjá stofnunum til þess að vilja hagræða“ „Svarið er einfaldlega: Svona höfum við alltaf gert þetta“ „Oft velt því fyrir mér: Hvenær munu þessar sögusagnir hætta?“ Sögurnar í fyrra: Því lífið er svo miklu meira en bara vinnan „Ætla ekki að ljúga því að ég sé einhver ofurhress morguntýpa“ „Þú vinnur eftir hentugleika á þeim staðsetningum sem henta“ „Helst eldri stjórnendur sem vilja fá fólkið til baka“ „Oft velur maður frekar það sem maður er góður í“ Verkefnin í fyrra: Stelpupabbar, forðunarhegðun, mismunun og áherslan á jákvæðnina „Hef einstaklega gaman af þessari stanslausu niðurlægingu“ Sjá meira
Þrjú snilldarráð fyrir góð samskipti Góð samskipti eru alltaf lykilatriði. Hvort heldur sem er í leik eða starfi. Við viljum öll standa okkur sem best í góðum samskiptum en eigum það mögulega til að gleyma okkur. 12. janúar 2024 07:00
Andfúli vinnufélaginn og góð ráð Við erum andfúl á morgnana þegar að við vöknum en sem betur fer er það frá um leið og við höfum burstað tennurnar. Og þó. 19. ágúst 2022 07:01
Góð ráð fyrir lata starfsmenn Við eigum okkur öll okkar daga. Já, svona leti-daga. Mætum til vinnu og erum hálf löt allan daginn. Komum litlu í verk. Eigum erfitt með að einbeita okkur. Erum þreytt. Eða með hugann annars staðar. Sem betur fer, eru leti-dagarnir ekki viðvarandi. Daginn eftir mætum við til vinnu á ný, galvösk og brettum upp ermar. 12. júlí 2021 07:01
Hámarkstími fullorðinna í símanum og góð ráð Nú hafa Danir tekið af skarið og gefið út leiðbeiningar um símanotkun fullorðins fólks. Sem talin er geta verið heilsuspillandi ef notkunin nemur meira en þrjár klukkustundir á dag. 19. júní 2024 07:01
Góð ráð til að sporna við „ofhugsunum“ Að ofhugsa eða verja óendanlegum tíma í að greina hluti og kryfja þá er vandamál sem margir kannast við. Heilu dagarnir geta farið í þessar hugsanir, sem þó leiða oft ekki til neinna lausna. 31. mars 2021 07:00