Enski boltinn

Kvennalið Man. Utd. býr og starfar á æfingasvæði enska lands­liðsins

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Maya Le Tissier, varnarmaður enska landsliðsins og Manchester United, sést hér á St. George's Park.
Maya Le Tissier, varnarmaður enska landsliðsins og Manchester United, sést hér á St. George's Park. Naomi Baker - The FA/The FA via Getty Images

Kvennalið Manchester United mun undirbúa sig fyrir komandi tímabil í úrvalsdeildinni á æfingasvæði enska landsliðsins, St. George’s Park. Karlalið félagsins æfir á Carrington og notar búningsherbergi kvennaliðsins.

Greint var frá því fyrir rúmum mánuði að framkvæmdir væru hafnar á Carrington æfingasvæðinu. Alls verður ráðist í fimmtíu milljóna punda endurbætur og framkvæmdir munu standa yfir allt tímabilið.

Svæðið við St. George's Park þykir það glæsilegasta.Adam Fradgley/West Bromwich Albion FC via Getty Images

Kvennaliði félagsins var gert að yfirgefa svæðið í sumar svo öruggt pláss væri fyrir karlaliðið. Manchester United hlaut nokkra gagnrýni fyrir þá ákvörðun og breskir fjölmiðlar greindu frá því að þær yrðu settar í tímabundna og flytjanlega búningsklefa en myndu æfa á Carrington.

Sú varð ekki raunin, kvennalið félagsins mun æfa í St. George‘s Park í Staffordshire, þar sem öll landslið Englands æfa fyrir sínar keppnir. 

Svæðið er staðsett í um níutíu mínútna keyrslufjarlægð frá Manchester og því þótti stjórnarmönnum hentugast að bjóða leikmönnum að búa á svæðinu í þrjár vikur áður en haldið er til Marbella í æfingaferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×