Fótbolti

Orri Steinn lagði upp tvö gegn pöbbaliðinu

Siggeir Ævarsson skrifar
Orri Steinn Óskarsson fagnar þrennu síðasta vetur
Orri Steinn Óskarsson fagnar þrennu síðasta vetur Getty/Lars Ronbog

Stórlið FCK átti ekki í miklum vandræðum á útivelli gegn FC Bruno's Magpies í fyrri leik liðanna í undankeppni Sambandsdeildarinnar en Orri Steinn og félagar höfðu töluverða yfirburði í leiknum.

Lokatölur urðu 0-3 Dönunum í vil en heimamenn náðu ekki einu skoti á rammann í leiknum og voru lítið með boltann. FC Bruno's Magpies eru sagðir spila agaðan varnarleik og það kom mögulega í veg fyrir að mörkin yrðu enn fleiri í kvöld.

Orri Steinn Óskarsson lagði upp fyrsta og síðasta mark FCK í kvöld og verður að teljast ansi líklegt að þessi sigur fleyti liðinu langleiðina áfram í næstu umferð en seinni leikur liðanna fer fram í Kaupamannahöfn 1. ágúst.

Lið FC Bruno's Magpies er frá Gíbraltar en aðeins búa rúmlega 30.000 manns á höfðanum. Saga liðsins er ansi skrautleg eins og má lesa í umfjöll Vísis frá því fyrr í dag hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×