Fótbolti

Kristófer Ingi ekki með Blikum sökum hand­vammar

Siggeir Ævarsson skrifar
Kristófer Ingi brýtur sér leið að marki GFK Tikves
Kristófer Ingi brýtur sér leið að marki GFK Tikves Vísir/HAG

Kristófer Ingi Kristinsson, leikmaður Breiðabliks, situr uppi í stúku og fylgist með leik Breiðabliks og Drita þessa stundina en hann átti að vera á varamannabekknum í kvöld.

Samkvæmt heimildum Vísis varð einhver handvömm í skráningu Kristófers á leikskýrslu fyrir leikinn. Færa átti hann úr byrjunarliði á bekkinn en deildar meiningar eru um það hvort mistökin hafi orðið hjá vef UEFA eða Blikum sjálfum þegar leikskýrslan var gerð.

Reynt var að tjónka við eftirlitsmann UEFA á leiknum til að fá mistökin leiðrétt en honum varð ekki haggað.

Kristófer hefur komið við sögu í átta leikjum Breiðabliks í Bestu deildinni í sumar og þá skoraði hann í báðum leikjum Breiðabliks gegn GFK Tikves.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×