Fótbolti

Njarð­víkingar hægðu á Þrótturum

Siggeir Ævarsson skrifar
Þróttarar fengu smá kælingu í kvöld, þrátt fyrir að hiti hafi verið í leiknum
Þróttarar fengu smá kælingu í kvöld, þrátt fyrir að hiti hafi verið í leiknum ÞRÓTTUR REYKJAVÍK

Fjórir leikir fóru fram í Lengjudeild karla í kvöld og það má segja að það hafi ekki vantað hitann, þó svo að það sé bölvuð kuldatíð. Tvö rauð spjöld fóru á loft og tvö víti voru dæmd.

Njarðvíkingar tóku á móti Þrótturum sem höfðu verið á mikilli siglingu fyrir leikinn og unnið þrjá leiki í röð. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en Kaj Leo Í Bartalstovu kom heimamönnum yfir á 64. mínútu. 

Kára Kristjánsson jafnaði svo úr víti á 82. mínútu og í uppbótartíma fékk Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari Njarðvíkur svo rautt spjald en menn virtust eiga eitt og annað óuppgert úti á velli eftir að flautað var til leiksloka.

Á Seltjarnarnesi tóku heimamenn í Gróttu á móti Grindavík. Fyrir leikinn hafði Grótta tapað sjö leikjum í röð. Að sama skapi hefur Grindvíkingum aðeins fatast flugið eftir að hafa rétt úr kútnum eftir erfiða byrjun á tímabilinu. Tvö töp í síðustu tveimur leikjum og það þriðja bættist við í kvöld.

Grótta vann að lokum 3-1 sigur en vendipunktur leiksins kom á 82. mínútu þegar Matevz Turkus, leikmaður Grindavíkur, fékk rautt spjald og Grótta víti. Pétur Theódór Árnason brenndi af vítinu en fylgdi því eftir. Gabríel Hrannar Eyjólfsson innsiglaði sigurinn svo í uppbótartíma með marki frá miðlínu en Aron Dagur, markvörður Grindavíkur, var kominn fram í teiginn.

Grindvíkingar hafa verið ansi duglegir við að safna rauðum spjöldum upp á síðkastið en þetta var fjórða rauða spjaldið sem liðið fær dæmt á sig í jafnmörgum leikjum.

Í Breiðholti var boðið upp á alvöru nágrannaslag, þar sem ÍR hafði betur gegn Leikni, 1-0 og í Mosfellsbæ sóttu Keflvíkingar góð þrjú stig í greip Aftureldingar, lokatölur þar 1-3 gestunum í vil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×