Tíska og hönnun

Tískan á Ólympíu­leikunum

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Stórstjörnur, hátískufólk og afreks íþróttafólk mætti í fyrirpartý Ólympíuleikanna í gær.
Stórstjörnur, hátískufólk og afreks íþróttafólk mætti í fyrirpartý Ólympíuleikanna í gær. SAMSETT/GETTY

Sumarólympíuleikarnir 2024 verða settir með pomp og prakt í dag í París. Tískurisinn Louis Vuitton tók forskot á sæluna og bauð í fyrirpartý fyrir leikana í gær í höfuðstöðvum sínum þar sem stórstjörnur, hátískubransinn og atvinnu íþróttafólk kom saman í sínu alflottasta pússi.

Meðal gesta voru Hollywood leikkonan Zendaya, hjartaknúsarinn Jeremy Allan White, poppstjarnan Rosalia, Vogue drottningin Anna Wintour, tónlistarmaðurinn og hönnuðurinn Pharrell Williams, körfuboltakappinn LeBron James, ofurparið Sophia Bush og Ashlyn Harris og lengi mætti telja.

Þá tók rísandi stjarnan og söngkonan Tyla meðal annars lagið Water klædd í íþróttatreyju úr hönnun Pharrell Williams fyrir Louis Vuitton. 

Hér má sjá tískumyndir frá kvöldinu: 

Ástsæli rapparinn Snoop Dogg rokkaði gyllt jakkaföt.Julien M. Hekimian/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC
Ofurparið Ashlyn Harris og Sophia Bush. Harris spilaði fótbolta með landsliði Bandaríkjanna lengi vel og Bush er hvað þekktust fyrir hlutverk sitt í sívinsælu sjónvarpsþáttunum One Tree Hill.Pascal Le Segretain/Getty Images
Chris Meledandri, Brian L. Roberts, Steven Spielberg, Donna Langley og Mike Cavanagh í góðum gír en hvítur og blár virðist vinsæll hjá þessum hópi.Julien M. Hekimian/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC
Sögulegi leikstjórinn Spike Lee mætti með hattinn í ofurtöff fitti.Kristy Sparow/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC
Tískuhönnuðurinn Arthur Avellano kom, sá og sigraði ásamt gesti sínum þegar það kom að best klæddu kvöldsins.Julien M. Hekimian/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC
Leikarinn Alan Cumming rokkaði glansandi appelsínugul jakkaföt með sólgleraugu í stíl.Julien M. Hekimian/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC
Listamennirnir Salvador Breed og Iris Van Herpen voru meðal best klæddu gestanna.Julien M. Hekimian/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC
Leikkonan og stjarnan Zendaya í glæsilegum svörtum og skínandi síðkjól.Arnold Jerocki/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC
Leikarinn og hjartaknúsarinn Jeremy Allen White stílhreinn og smart.Julien M. Hekimian/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC
Poppstjarnan Rosalía brosti breitt í smart bróderuðum kjól.Kristy Sparow/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC
Leikkonan Meadow Walker í ofurtöff silfurlituðum partýkjól.Julien M. Hekimian/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC
Leikkonan Yvonne Orji glæsileg með gyllt hálsmen og skikkju.Kristy Sparow/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC
Fyrirsætan Cindy Bruna gordjöss í grænu.Kristy Sparow/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC
Leikkonan og stjórstjarnan Charlize Theron skartaði glæsilegum hvítum kjól við gyllta skó með gyllta tösku.Kristy Sparow/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC
Hönnuðurinn Mira Mikati var með klæðnaðarkóðann alveg á lás í trylltri dragt með tennisspöðum.Kristy Sparow/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC
Baz Luhrmann og Vogue drottningin Anna Wintour skinu skært í denim dressi og blóma galakjól.Kristy Sparow/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC
Körfuboltakappinn LeBron James í Louis Vuitton fitti og Nike skóm.Julien M. Hekimian/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC
Rísandi stjarnan og söngkonan Tyla steig á stokk í partýinu og tók meðal annars smellinn sinn Water.Julien M. Hekimian/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC
Tónlistarmaðurinn, kúltúr kóngurinn og hönnuðurinn Pharrell Williams lét sig að sjálfsögðu ekki vanta en hann sér um herrafatnað tískurisans Louis Vuitton.Kristy Sparow/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC
Tennisdrottningin Serena Williams smart í dragt og vesti með glæsilega Louis Vuitton tösku.Julien M. Hekimian/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC
Tískuprinsinn Ibrahim Kamara skein eins og sólin í trylltum gulum klæðnaði.Julien M. Hekimian/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC
Drottningin Queen Latifah mætti afslöppuð og töff og gaf friðarmerkið.Julien M. Hekimian/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC
Leikarinn Jimmy Akingbola ofurtöff í 70's jakkafötum frá Louis Vuitton.Julien M. Hekimian/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC
Leikarinn Omar Sy flottur í dökkbláum jakkafötum með hvítum tölum.Kristy Sparow/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC
Moschino kóngurinn Jeremy Scott mætti í gulljakka.Kristy Sparow/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC
Tískuhönnuðurinn Pier Paolo Piccioli í hvítu frá toppi til táar.Kristy Sparow/Getty Images for LVMH x Vogue x NBC





Fleiri fréttir

Sjá meira


×