Erlent

Hug­mynda­fræði­legur á­greiningur klýfur Murdoch-fjölskylduna

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Rupert og Lachlan eru sagðir standa saman í að vilja knýja breytingarnar í gegn, gegn vilja Prudence, Elisabeth og James.
Rupert og Lachlan eru sagðir standa saman í að vilja knýja breytingarnar í gegn, gegn vilja Prudence, Elisabeth og James. Getty/GC Images/Jean Catuffe

Miklar deilur standa nú innan Murdoch-fjölskyldunnar eftir að ættfaðirinn og fjölmiðlamógúllinn Rupert Murdoch freistaði þess að breyta skilmálum fjölskyldusjóðs sem var stofnaður þegar hann skildi við aðra eiginkonu sína, Önnu Murdoch Mann.

Meðal þess sem Mann krafðist þegar hún skildi við eiginmann sinn var að kveðið yrði á um það í skilnaðarsáttmálanum að þau fjögur börn sem Rupert átti á þessum tíma fengju öll jafnan atkvæðarétt í viðskiptaveldi föður síns að honum látnum.

Börnin fjögur voru Prudence, sem Rupert átti með fyrstu eiginkonu sinni Patriciu Booker, og Elisabeth, Lachlan og James, sem Rupert átti með Mann.

Elisabeth og James árið 2010.Getty/Indigo

Stofnaður var fjölskyldusjóður um fjölmiðlasamsteypuna News Corp með næstum óhagganlegum skilmálum, sem kveða á um að börnin fjögur hljóti öll jafnan rétt til ákvarðanatöku þegar faðir þeirra fellur frá. 

Rupert hefur síðan eignast tvær dætur til viðbótar með Wendi Deng, þriðju eiginkonu sinni en stúlkurnar, Grace og Chloe, munu erfa föður sinn til jafns við hin börnin en fá ekki atkvæðarétt.

Samkvæmt New York Times standa deilurnar, sem fyrr segir, um tilraunir Rupert til að fá skilmálum sjóðsins breytt, á þann veg að Lachlan Murdoch, sem tók við stjórn News Corp árið 2019, fari alfarið með stjórn þess.

Prudence fyrir brúðkaup föður síns og Jerry Hall.Getty/GC Images/Alex Huckle/Neil Mockford

Það sé börnunum fyrir bestu að taka af þeim völdin

Deilan virðist grundvallast á hugmyndafræðilegum ágreiningi en Lachlan hefur fylgt í fótspor föður síns hvað varðar stuðning hans við íhaldssamari öfl stjórnmálanna, á meðan systkini hans þrjú hafa til að mynda gagnrýnt fréttaflutning Fox News og viljað færa fjölmiðla fjölskyldunnar meira í átt að miðju.

Prudence, Elizabeth og James eru sögð óánægð með þá stefnu sem Lachlan hefur tekið, meðal annars með tilliti til einarðs stuðnings Fox News við Donald Trump og Rupert er sagður hafa áhyggjur af því að þremenningarnir munu freista þess að koma Lachlan frá þegar fram líða stundir.

Rupert er sagður hafa átt fund með Prudence og Elisabeth í Lundúnum þar sem hann lagði breytingarnar á sjóðnum fyrir þær og vonaðist til að ná sáttum. Þær eru hins vegar sagðar hafa brugðist hinar reiðustu við.

Það mun væntanlega verða dómstóla að kveða á um það hvort Rupert er heimilt að gera umræddar breytingar á skilmálum fjölskyldusjóðsins en skilmálarnir leyfa breytingar sem gerðar eru í góðri trú og öllum til hagsbóta.

Lögmenn hans munu halda því fram að það sé nauðsynlegt, þar sem erjur á milli „barnanna“ gætu komið niður á stefnu fjölmiðla News Corp og þannig rýrt virði þeirra. Það sé þannig Prudence, Elisabeth og James raunar í hag að Lachlan haldi einn um stjórnartaumana.

Rupert ásamt Wendi Deng og dætrunum Grace og Chloe. Deng var þriðja eiginkona Ruperts en hann gekk nýlega í sitt fimmta hjónaband.Getty/Steven Ferdman

Gríðarlegir hagsmunir í húfi

Systkinin þrjú, sem hafa áður deilt, standa sameinuð gegn föður sínum og Lachlan í umræddu máli og hafa ráðið sameiginlega lögfræðinga. Deilurnar minna óneitanlega á hina gríðarvinsælu HBO þætti Succession, sem eru sagðir hafa verið byggðir á drama innan Murdoch fjölskyldunnar.

Líkt og persónurnar í Succession eru erfingjar Murdoch langt í frá á flæðiskeri staddir en hver og einn þeirra, þar með taldar Grace og Chloe, fengu um það bil tvo milljarða dala í sinn hlut þegar Rupert ákvað að selja kvikmyndaver sín og aðrar eignir til Walt Disney Company.

James Murdoch og eiginkona hans Kathryn tilkynntu á þeim tíma að þau hygðust nýta hluta fjármunanna til að berjast gegn loftslagsbreytingum, sem eru eitt þeirra mála þar sem afstaða barnanna þriggja og umfjöllun Fox News fara ekki saman.

Auk þess að stjórna Fox News á Murdoch-fjölskyldan, í gegnum News Corp, miðla á borð við Wall Street Journal, New York Post, The Sunday Times og The Sun í Bretlandi. Þá á News Corp miðla í Ástralíu og bókaútgáfuna HarperCollins.

News Corp er metið á um 15 milljarða Bandaríkjadala en áhrif fyrirtækisins á almenna  umræðu eru mögulega ómetanleg. Þannig gæti það skipt verulegu máli hvernig dómsmálið fer.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×