Innlent

Ný líkön sýna um­fang hraunsins

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Rúmmál hraunsins er um 150 milljón rúmmetrar.
Rúmmál hraunsins er um 150 milljón rúmmetrar. Loftmyndir ehf.

Fyrirtækið Loftmyndir ehf. hefur mælt rúmmál og flatarmál hraunsins við Grindavík og birti í gær myndir á síðu sinni á Facebook þar sem hægt er að sjá flæði og magn hraunsins.

Fyrirtækið sérhæfir sig í loftmyndatöku, gerð myndkorta og landlíkana, uppsetningu og rekstri vefkortalausna auk skyldra verkefna.

„Fyrir þá sem hafa gaman af tölum þá erum við búin að mæla flatarmál og rúmmál hraunsins við Grindavík. Flatarmálið er 13,6 km2 (1360 ha) og heildar rúmmál þess er nærri 150 milljónum rúmmetra,“ segir í færslu Loftmynda.

Loftmyndir ehf.
Loftmyndir ehf.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×