Innlent

Sala fíkni­efna fyrir opnum tjöldum og stemmning á Húsa­vík

Telma Tómasson skrifar
Hádegisfréttir Bylgjunnar eru á slaginu 12:00.
Hádegisfréttir Bylgjunnar eru á slaginu 12:00. Vísir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar umfangsmikið fíkniefnamál, sem teygir anga sína víða. Fimm eru í varðhaldi vegna þess, en sala fíkniefnanna fór fram fyrir opnum tjöldum á samfélagsmiðlum.

Nánar verður fjallað um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar og rætt við yfirlögregluþjónn, sem segir talsvert magn fíkniefna í umferð. 

Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 26. júlí 2024

Óljóst er hvort skemmdarverk á franska lestarkerfinu í nótt hafi áhrif á íslensku Ólympíufaranna. Gríðarleg öryggisgæsla er í París, segir aðalfararstjóri íslenska hópsins sem rætt er við. 

Dómsmálaráðherra hefur óskað eftir gögnum frá Þjóðskrá vegna nafnabreytingar Mohammad Kourani sem fékk nafni sínu breytt í Mohamad Th. Jóhannesson. Hún væntir svara frá stofnuninni og ítrekar að sveigjanleiki í lögum um nafnabreytingar sé ekki ætlaður að auðvelda brotamönnum að fela sig í samfélaginu. 

Búist er við að þúsundir sæki vinsælar útihátíðir um helgina. Veðurfræðingur spáir bongóblíðu víðast hvar á morgun. Rætt verður við Guðrúnu Huld Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra Mærudaga, um veglega dagskrá á Húsavík. 

Í sportinu verður farið um víðan völl og fjallað meðal annars um áhyggjur af því á því að knattspyrnuferill Theódórs Elmars Bjarnasonar sé á enda vegna hnémeiðsla. Hann bíður þess að komast í myndatöku.

Hádegisfréttir á Bylgjunni á slaginu tólf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×