Tónlist

Fyrsta lagið sem Ný­dönsk gefur út í þrjú ár

Máni Snær Þorláksson skrifar
Nýdönsk hefur gefið út nýtt lag í fyrsta skipti í þrjú ár. Von er á nýrri plötu á næstu mánuðum.
Nýdönsk hefur gefið út nýtt lag í fyrsta skipti í þrjú ár. Von er á nýrri plötu á næstu mánuðum. Nýdönsk

Hljómsveitin Nýdönsk sendir frá sér nýtt lag í dag. Lagið ber heitið Fullkomið farartæki en von er á nýrri hljómplötu frá sveitinni á næstu mánuðum.

Nýdönsk skipa nú sem fyrr þeir Björn Jörundur, Daníel Ágúst, Jón Ólafsson, Ólafur Hólm og Stefán Hjörleifsson. Höfundar lagsins Fullkomið farartæki eru þeir Björn og Daníel. Hljóðupptaka og hljóðblöndun var unnin af Katie May.

Hljómsveitin er nýkomin að utan en drengirnir hafa dvalið á Englandi um hríð ásamt gítarleikaranum Guðmundi Péturssyni. Þar voru þeir í hljóðveri Peter Gabriel, sem kallast Real World, en það er staðsett í sveit á Suður-Englandi.

„Ný hljómplata mun líta dagsins ljós á næstu mánuðum og má segja að Fullkomið farartæki sé ágætis forréttur áður en aðalrétturinn verður borinn á borð fyrir hungraða aðdáendur sveitarinnar,“ segir í tilkynningu um lagið.

Þrjú ár eru síðan Nýdönsk gaf síðast út lag og enn lengra síðan síðasta plata þeirra leit dagsins ljós. Það var platan Á plánetunni jörð en hún kom út fyrir sjö árum síðan og hlaut fern verðlaun á íslensku tónlistarverðlaununum

Nýdönsk mun halda sína árlegu tónleika í Eldborg þann 21.september næstkomandi og viku síðar í Hofi á Akureyri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×