Íslenski boltinn

HK spurðist fyrir um Frederik Schram og Valur bauð í Loga Hrafn

Valur Páll Eiríksson skrifar
Fredrik Schram er samningsbundinn Val út leiktíðina en hverfur á braut að henni lokinni. Ef hann fer ekki fyrr.
Fredrik Schram er samningsbundinn Val út leiktíðina en hverfur á braut að henni lokinni. Ef hann fer ekki fyrr. Vísir/Anton Brink

HK spurðist fyrir um Frederik Schram, markvörð Vals, á dögunum. Þetta herma heimildir fréttastofu. Þjálfarar liðanna tveggja kveðast þó báðir koma af fjöllum.

HK-ingar leita lifandi ljósi að markverði eftir að Arnar Freyr Ólafsson, sem hefur varið mark liðsins undanfarin ár, sleit hásin í leik við Vestra síðustu helgi.

HK hafði samband við Val með það fyrir augum að fá Frederik Schram til að verja mark liðsins út leiktíðina en samningur Frederiks við Val rennur út að tímabilinu loknu. Valur reyndi að endursemja við Frederik án árangurs og ljóst að hann leitar á önnur mið í haust, ef ekki nú strax í sumarglugganum.

Valur samdi nýverið við Ögmund Kristinsson, sem sat á varamannabekk liðsins í Evrópuleik við St. Mirren í gærkvöld, og því tveir af betri markvörðum landsins á mála hjá Hlíðarendafélaginu.

Ómar Ingi Magnússon, þjálfari HK, vildi þó ekki kannast við það að HK hefði reynt við Frederik Schram en sagði HK-inga hafa spurst fyrir víða hér á landi. HK-ingar séu að leitast eftir markverði bæði innanlands og utan landssteinanna.

Arnar Grétarsson, þjálfari Vals, kvaðst ekki hafa heyrt af tilboði frá HK. Heimildir íþróttadeildar segja aðra sögu.

Valsmenn hafa þá verið í sambandi við FH vegna miðjumannsins Loga Hrafns Róbertssonar og lagði fram tilboð sem var hafnað. Sá er, líkt og Frederik, að klára samning sinn eftir leiktíðina.

Logi Hrafn.Vísir/Hulda Margrét

Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá FH, sagði við Fótbolti.net í gær að erlend félög hefðu borið víurnar í Loga Hrafn en heimildir íþróttadeildir herma að Valsmenn vilji einnig ólmir fá miðjumanninn í sínar raðir.

Félagsskiptaglugginn opnaði 17. júlí síðastliðinn og er opinn alls í fjórar vikur, til 13. ágúst næst komandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×