Upp­gjör og við­töl: Fram - Valur 4-1   | Framarar tóku Vals­menn í kennslu­stund

Árni Jóhannsson skrifar
440144080_10159487671492447_4297352357656238637_n
vísir/anton

Fram vann óvæntan og öruggan 4-1 sigur er liðið tók á móti Valsmönnum í 16. umferð Bestu-deildar karla í knattspyrnu í kvöld.

Það var ekki vitað í hvaða átt þessi leikur myndi stefna því Valsmenn eru milli Evrópuleikja og undir miklu álagi. Fram hinsvegar var að snúa úr 17 daga fríi frá því að spila fótbolta og hefði leikurinn getað litast í aðra hvora áttina út frá þessum staðreyndum. Fram hinsvegar tók orkuna sína, ásamt vindorkunni, og þannig lagað keyrðu yfir Valsmenn í fyrir hálfleik. Allavega í markaskorun. 

Már Ægisson náði að koma Fram yfir á 10. mínútu þegar langskot hans fór í varnarmann og yfir Frederik Schram í markinu. Þannig var, að ég held, markmiði fyrri hálfleiks náð því Fram vildi að öllum líkindum nýta vindinn í bakið til góðra verka. Valsmenn tóku þá við boltanum og héldu honum án þess þó að ná að skapa sér mikið af færum. 

Aftur dró til tíðinda á 26. mínútu þegar hamagangur varð í vítateig Valsmanna. Boltinn barst inn og út úr teignum og þegar Már Ægisson náði skoti, sem fór yfir, var hann tæklaður um leið og vítaspyrna dæmd. Fred steig á punktinn og dúndraði knettinum í hornið. Frederik skutlaði sér í rétt horn en hann hefði þurft að teygja ansi mikið úr sér til að ná til knattarins.

Vont varð verra sex mínútum síðar þegar Kennie Chopart fékk boltann við miðju vallarins. Hann óð af stað og var ekki stöðvaður. Hann komst að vítateigslínunni og skrúfaði boltann þá með utanverðum hægri fæti í fjærhornið. Aftur hefði Frederik þurft að teygja úr sér til að ná til knattarins. 

Valur virkuðu mjög vindlausir á þessum tímapunkti og þurftu að grafa djúpt í sálartetrin sín til rétta sig við. Þeir náðu að gera leikinn áhugaverðan aftur þegar Patrik Pedersen minnkaði muninn á 39. mínútu. Hann fékk boltann frá Kristni Frey Sigurðssyni í gegnum varnarlínuna og náði að plata Kyle upp úr skónum og snúa boltann framhjá Ólafi Íshólm í makrinu. Virkilega vel gert og maður sá að Valur þurfti á þessu að halda vitandi að þeir væru með vindinn í bakið í seinni.

Úr varð að Valur hélt boltanum líklega 3/4 af seinni hálfleiknum og börðu hressilega á hurðina hjá heimamönnum. Bönkinu urðu háværari og ókurteisari eftir því sem leið á en Ólafur Íshólm og varnarlína Fram stóð sína vakt með stökustu prýði og héldu Val frá því að skora. Það var einungis tvennt í stöðunni sem gat gerst, Valur næði að jafna eða Fram næði að auka muninn með fjórða marki sínu úr skyndisókn. 

Það síðarnefnda raungerðis. Fred vann þá boltann í miðjuboganum og kom boltanum á Má Ægissyni. Sá geystist fram á sama tíma og Fred þaut inn í vítateiginn. Hárnákvæm sending Más fann Fred sem renndi boltanum framhjá Frederik í markinu. Staðan orðin 4-1 og vindurinn úr seglum Valsmanna. 

Fram fagnaði sigrinum innilega og geta tekið frammistöðuna með sér upp í Árbæ á miðvikudaginn.

Atvik leiksins

Fyrsta mark leiksins fær þá nafnbót. Það er um að gera að láta vaða á markið þegar vindurinn er sterkur í bakið á liði manns. Skítt með xG tölfræði og allt það, þú skorar ekki nema að skjóta. Már Ægisson gerði það á 10. mínútu. Boltinn hafði vissulega viðkomu í varnarmanni á leið sinni yfir markvörðinn og í netið en markið opnaði leikinn upp á gátt og úr varð mikil skemmtun.

Stjörnur og skúrkar

Mikið af stjörnum hjá Fram í dag en Már Ægisson fær nafnbótina. Kappinn skoraði, lagði upp og náði í vítaspyrnu. Aðrir sem þurfa að fá útkall eru Ólafur Íshólm í markinu, Fred og svo Kennie Chopart en allt Fram liðið var mjög flott í dag. Rúnar talaði um að hann hafi fengið allt sem hann vildi og miklu meira eftir leik.

Valsarar aftur á móti þurfa að líta í eigin barm. Þeir sköpuðu sér urmul marktækifæra án þess að skora, gerðu sig seka um slappan varnarleik og Gylfi Þór fékk ekki boltann á löngum köflum í fyrri hálfleik.

Dómarinn

Elías Ingi getur held ég verið þokkalega sáttur með sinn leik. Greip í alla þá tauma sem þurfti að grípa í og spjöldin öll rétt. 

Umgjörð og stemmning

Umgjörðin að sjálfsögðu til fyrirmyndar hjá Fram. Veðrið hefði getað sett mikið stærra strik í reikninginn en það heyrðist heldur betur vel í stuðningsmönnum heimamanna lengst af í leiknum. 577 lögðu leið sína á Lambhagavöllinn og ég held að mikill meirihluti hafi verið stuðningsmenn Framara.

Viðtöl

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira