Erlent

Þriðja ung­mennið hand­tekið vegna drápsins í Land­skrónu

Kjartan Kjartansson skrifar
Sænsku lögreglumaður að störfum. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki.
Sænsku lögreglumaður að störfum. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki. Vísir/EPA

Fimmtán ára stúlka var handtekin í tengslum við dráp á táningsstúlku í bænum Landskrónu í Svíþjóð. Hún neitar allri sök. Tvö önnur ungmenni eru grunuð um aðild að drápinu á stúlkunni.

Lík fjórtán ára gamallar stúlku fannst illa út leikið á lestarstöð í Landskrónu á þriðjudag. Lögreglan þar telur að henni hafi verið ráðinn bani. Hún fannst bundin á höndum og með áverka um allan líkamann.

Jafnaldra fórnarlambsins var handtekin sama dag, grunuð um aðild að dauða stúlkunnar. Hún er talin hafa þekkt fórnarlambið. Annað ungmenni á aldrinum fimmtán til átján ára var einnig handtekið.

Stúlkan sem nú hefur verið handtekin neitaði allri sök þegar gæsluvarðhaldskrafa yfir henni var tekin fyrir í dag. Hún kom fyrir dóminn í gegnum fjarfundarbúnað, að sögn sænska blaðsins Dagens nyheter. Tomas Olvmyr, saksóknari, færði rök fyrir því að hætta væri á að stúlkan reyndi að spilla sönnunargögnum eða leggja stein í götu rannsóknarinnar ef hún sætti ekki varðhaldi.

Olvmyr segir að stúlkurnar tvær sem voru handteknar þekkist en séu ekki skyldar. Við yfirheyrslur hafi þær viðurkennt þátt í málinu. Þriðji sakborningurinn er sakaður um að hylma yfir glæp.

Umfangsmiklar lögregluaðgerðir hafa átt sér stað í Landskrónu eftir að stúlkan fannst látin, þar á meðal hafa kafarar leitað í síki í miðbænum. Þá eru tveir hnífar sagðir hafa fundist nærri staðnum sem líkið fannst. Lögreglan rannsakar hvort þeir tengist drápinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×