Innlent

Ekki verið ætlun þeirra að gera bílakaupin opin­ber

Eiður Þór Árnason skrifar
Halla Tómasdóttir hefur ekki veitt íslenskum fjölmiðlum viðtöl eftir forsetakosningarnar í júní.
Halla Tómasdóttir hefur ekki veitt íslenskum fjölmiðlum viðtöl eftir forsetakosningarnar í júní. Vísir/Vilhelm

Halla Tómasdóttir segir að ljósmynd af henni og Birni Skúlasyni, eiginmanni hennar að taka við nýjum Volvo-raf­bíl hafi verið birt á Facebook-síðu Brimborgar án þeirra vitundar. Ekki hafi verið ætlunin að gera bílakaupin opinber og þau ekki farið fram á nein sérkjör.

Á sama tíma fagnar hún því að fólk viti að hjónin hafi valið umhverfisvænan bíl og vonar að þau geti verið öðrum til fyrirmyndar. Þetta segir Halla í yfirlýsingu en fjallað hefur verið um bílakaup verðandi forsetahjóna í dag eftir að bílaumboðið Brimborg greindi frá kaupunum á Facebook-síðu sinni. 

Þá sagði forstjóri fyrirtækisins að hjónin hafi notið sérkjara líkt og aðrir langtímaviðskiptavinir. Eftir að Halla sendi yfirlýsingu til fjölmiðla áréttaði hún í færslu á stuðningsmannasíðu sinni að þau hafi ekki veitt leyfi fyrir myndbirtingunni og óskað eftir að hún yrði fjarlægð. Orðið var við því. 

Facebook-færslan umrædda sem hefur síðan verið fjarlægð. Skjáskot

Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar sagði í samtali við RÚV í dag að samfélagsmiðlafærslur sem þessar væru algengar og starfsfólk Brimborgar spurt um leyfi fyrir myndbirtingu eftir að kaupin voru frágengin. Fréttastofa hefur ekki náð tali af honum í dag en ljóst er að yfirlýsing Höllu stangast á við orð Egils. 

Halla segir hjónin ekki hafa farið fram á nein sérkjör en boðist „staðgreiðsluafsláttur sambærilegan þeim sem við fengum síðast þegar við áttum viðskipti við sama fyrirtæki og öðrum viðskiptavinum býðst einnig.

Egill á boðslista Höllu

Halla tekur við embætti forseta Íslands þann 1. ágúst eða eftir tæpa viku. Að venju munu embættismenn og þinglið vera viðstatt athöfnina en að þessu sinni fær Halla að bjóða öðrum hópi fólks sem fylgist með á skjá þegar hún ritar undir drengskaparheit áður en allir sameinast í Smiðju, nýrri viðbyggingu við Alþingi. Vísir greindi frá því í dag að Egill, áðurnefndur forstjóri Brimborgar væri að finna á síðari listanum og væri því meðal sérstakra boðsgesta Höllu.

Halla hefur ekki veitt viðtal vegna málsins í dag og hefur almennt ekki orðið við viðtalsbeiðnum fjölmiðla eftir forsetakosningarnar, að undanskildu einu viðtali á bandarísku sjónvarpsstöðinni CNN.  Hún segir í yfirlýsingu sinni að hún hafi eftir kosningarnar tekið ákvörðun um að veita ekki frekari viðtöl fyrr en eftir embættistöku.  

Yfirlýsing Höllu til fjölmiðla í heild sinni

„Af virðingu við sitjandi forseta tók ég þá ákvörðun að veita ekki frekari viðtöl að loknum kosningum fyrr en eftir embættistöku, enda hef ég ekki tekið við embætti forseta ennþá og kem ekki fram í krafti þess. Ég vona að því sé sýndur skilningur. Við hjónin ákváðum að kaupa okkur bíl til eigin afnota og í amstri dagsins sá ég ekki fyrr en nú síðdegis að þau bílakaup eru orðin fréttaefni. Ég fagna því að fólk viti að við völdum að kaupa umhverfisvænan bíl, vonandi getum við verið öðrum góð fyrirmynd þar. Hinsvegar var það ekki ætlun okkar að þau bílakaup yrðu opinber og var ljósmyndin birt á samfélagsmiðlum án okkar vitundar. Við báðum vinsamlegast um að myndin yrðir fjarlægð um leið og við fréttum af því og var samstundis orðið við þeirri beiðni. Þá vil ég ítreka að við hjónin fórum ekki fram á nein sérkjör, en okkur bauðst staðgreiðsluafsláttur sambærilegan þeim sem við fengum síðast þegar við áttum viðskipti við sama fyrirtæki og öðrum viðskiptavinum býðst einnig.

Facebook-færsla Höllu 

Fréttin hefur verið uppfærð með Facebook-færslu Höllu. 


Tengdar fréttir

Forstjóri Brimborgar á athyglisverðum gestalista Höllu

Halla Tómasdóttir tekur við embætti forseta Íslands þann 1. ágúst eða eftir tæpa viku. Þá verður mikið um dýrðir. Sérlegur gestalisti Höllu vekur sérstaka athygli en á hundrað og tíu manna lista eru sjötíu og fimm konur. Á meðal karlmanna á listanum er forstjóri Brimborgar en forsetahjónin verðandi keyptu nýjan bíl hjá fyrirtækinu á dögunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×