Íslenski boltinn

„Það er erfitt að brjóta okkur niður“

Hinrik Wöhler skrifar
Ásta Eir Árnadóttir skoraði sitt fyrsta mark í Bestu deildinni í sumar.
Ásta Eir Árnadóttir skoraði sitt fyrsta mark í Bestu deildinni í sumar. Vísir/Vilhelm

Ásta Eir Árnadóttir, leikmaður Breiðabliks, skoraði eina mark leiksins þegar liðið sigraði Fylki á heimavelli í 14. umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Þrátt fyrir sigur fannst Ástu frammistaðan ekki upp á marga fiska.

„Þetta var ekkert spes, mér fannst við eiga fína spilkafla í fyrri hálfleik en frekar „sloppy“. Oft á tíðum lélegar sendingar og við þurftum að hlaupa að þeim. Mjög gott þó að klára þetta,“ sagði Ásta Eir eftir leikinn.

Blikar voru með góð tök á leiknum og sóttu mikið að marki Fylkis. Þær náðu þó aðeins einu sinni að koma boltanum fram hjá Tinnu Brá Magnúsdóttur í marki Fylkis.

„Við vorum að komast inn í teiginn en það vantaði aðeins sjálfstraust eða eitthvað til þess að skjóta á markið og reyna á markmanninn. Við ætluðum bara að rekja hann inn en ég held að þessar sem voru þarna frammi vita best hvernig eigi að klára þetta. Við vorum ekki alveg að opna þær nægilega vel. Mér fannst þó aldrei nein hætta, þær fengu ekki færi þó þær lágu aðeins á okkur í lokin. Vorum góðar til baka og engin opin færi frá þeim,“ sagði Ásta um sóknarleik liðsins.

Þetta er fimmti leikurinn í röð sem Breiðablik sigrar og hafa haldið hreinu í þeim öllum. Ásta er að vonum sátt með varnarleikinn í undanförnum leikjum.

„Mjög gott, við erum að færa vel og erum þéttar, það er erfitt að brjóta okkur niður. Við erum sáttar með að halda markinu hreinu, svo lengi sem við skorum.“

Eftir stuttan darraðardans í vítateignum fór skot Ástu í markið í upphafi leiks. Hún var ekki í miklum vafa um að markið væri hennar þegar hún var spurð.

„Ég ætla rétt að vona það, ég setti hann á nær. Kannski smá viðkoma en það var mjög gott að skora,“ sagði Ásta Eir glettin á svip að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×