Fótbolti

Szoboszlai skilaði Liverpool fyrsta sigrinum eftir Klopp

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Dominik Szoboszlai fagnar marki sínu í nótt.
Dominik Szoboszlai fagnar marki sínu í nótt. Andrew Powell/Liverpool FC via Getty Images

Dominik Szoboszlai skoraði eina mark leiksins er Liverpool lagði spænska liðið Real Betis í æfingaleik í nótt.

Þetta var fyrsti sigur Liverpool síðan Hollendingurinn Arne Slot tók við stjórnartaumunum af Jürgen Klopp, sem sagði starfi sínu lausu í vor eftir níu ára veru hjá félaginu.

Þetta var annar leikur félagsins undir stjórn Slot, en Liverpool mátti þola 1-0 tap gegn Preston í lokuðum æfingaleik á æfingasvæði Liverpool á dögunum.

Leikur Liverpool og Real Betis fór fram á Acrisure Stadium, heimavelli Pittsburgh Steelers í bandarísku NFL-deildinni.

Það var Dominik Szoboszlai sem skoraði eina mark leiksins þegar hann kom boltanum í netið á 34. mínútu eftir stoðsendingu frá Mohamed Salah.

Liverpool heldur æfingaferð sinni í Bandaríkjunum áfram og mætir Arsenal á fimmtudaginn og Manchester United á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×