Fótbolti

Dagur Dan kom Orlando á bragðið í öruggum sigri

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Dagur Dan Þórhallsson kom Orlando á bragðið í sigri Orlando í nótt.
Dagur Dan Þórhallsson kom Orlando á bragðið í sigri Orlando í nótt. Bob Drebin/ISI Photos/Getty Images

Dagur Dan Þórhallsson skoraði fyrsta mark Orlando City er liðið vann öruggan 4-1 sigur gegn CF Montreal í bandarísku bikarkeppninni í fótbolta í nótt.

Þetta var fyrsti leikur liðanna í riðlakeppni bikarsins og Dagur kom Orlando yfir strax á sjöundu mínútu. 

Facundo Torres bætti öðru marki liðsins við á 37. mínútu áður en Ramiro Enrique sá til þess að Orlando fór með 3-0 forystu inn í hálfleikinn.

Það var svo Martin Ojeda sem skoraði fjórða og síðasta mark Orlando-liðsins á 57. mínútu, en Josef Martinez minnkaði muninn fyrir Montreal á 69. mínútu áður en hann klikkaði svo á vítaspyrnu fimm mínútum síðar.

Niðurstaðan því 4-1 sigur Orlando sem er með þrjú stig eftir einn leik, en Montreal er enn án stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×