Fótbolti

Birnir Snær skoraði sigur­mark Halmstad

Siggeir Ævarsson skrifar
Birnir Snær Ingason skoraði 11 mörk fyrir Víkinga í 22 leikjum í Lengjudeildinni síðastliðið sumar
Birnir Snær Ingason skoraði 11 mörk fyrir Víkinga í 22 leikjum í Lengjudeildinni síðastliðið sumar Vísir/Hulda Margrét

Birnir Snær Ingason var hetja Halmstad í kvöld þegar hann skoraði eina mark liðsins í 1-0 sigri á Värnamo í sænsku úrvalsdeildinni og tryggði liðinu þrjú dýrmæt stig í baráttunni í neðri hluta deildarinnar.

Mark Birnis kom á 63. mínútu. Vel staðsett skot fyrir utan teig og átti Jonathan Rasheed, markvörður Värnamo aldrei möguleika á að verja.

Annar Íslendingur var einnig á skotskónum í dag. Kolbeinn Þórðarson skoraði þriðja mark Gautaborgar þegar liðið lá 3-4 á heimavelli gegn Brommapojkarna. Þetta var fyrsta mark Kolbeins í sænsku deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×