Innlent

Hringvegurinn lík­lega lokaður til kvölds

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Svanur Bjarnason, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Suðursvæði.
Svanur Bjarnason, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Suðursvæði. Vísir/Magnús Hlynur Hreiðarsson

Hringvegurinn milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs er enn lokaður. Vonast er til að hægt verði að hleypa umferð um hann með takmörkunum undir kvöld.

Hringvegurinn fór í sundur á sjö hundruð metra kafla um hádegisbil í gær austanmegin brúarinnar við ánna Skálm. Vegagerðin lokaði því veginum milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs en viðgerð hófst í gær og svo aftur snemma í morgun. Hátt í tíu manns frá Vegagerðinni gera við veginn og eru tvær gröfur notaðar í verkefnið. Svanur Bjarnason svæðisstjóri hjá Vegagerðinni býst hins vegar ekki við því að það takist að opna veginn fyrr en undir kvöld.

„Það hefur sjatnað mikið í ánni. Það var byrjað að gera við veginn strax i morgun að keyra fyllingu í  gatið sem rofnaði austan við brúnna.  Það þarf heilmikið efni í verkefnið en vegurinn er skemmdur á sjö hundruð metra kafla og er því mjög þröngur,“ segir Svanur.

Aðspurður um hversu langan tíma viðgerðin taki svarar Svanur: 

„Það er mjög erfitt að svara því núna en við erum að gæla við að okkur takist að hleypa einhverri umferð á með takmörkunum  undir kvöld. Vegurinn verður bara einbreiður til að byrja með. Þetta á svo bara eftir að koma í ljós þegar líður á daginn.“

Sérbúnir bílar hafa getað keyrt hjáleið um Fjallabak nyrðra. Svanur segir að vegna mikillar úrkomu geti sú leið líka orðið illfær. 

„Þessi leið hefur verið jeppafær en gæti líka lokast vegna mikillar rigningar í dag og þar að leiðandi mikils vatnsmagns í ám,“ segir hann að lokum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×