Körfubolti

Björtu stjörnurnar frá Suður-Súdan komnar á blað á Ólympíu­leikunum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Það var eðlilega mikil gleði í leikslok.
Það var eðlilega mikil gleði í leikslok. Suður-Súdan

Landslið Suður-Súdan í körfubolta vakti verðskuldaða athygli í aðdraganda Ólympíuleikanna sem nú fara fram í París þegar það þurfti stjörnuframmistöðu frá LeBron James til að tryggja Bandaríkjunum eins stigs sigur. 

Björtu stjörnurnar frá Suður-Súdan sýndu í dag það var engin tilviljun að liðið stóð í stjörnuliði Bandaríkjanna þegar það mætti Puerto Rico. Lið Suður-Súdan er með gælunafnið Björtu stjörnurnar og hefur unnið hug allra í heimalandinu sem og víðar um Afríku ef marka má frétt The Guardian

Þjóðin er í 33. sæti heimslista FIBA, Alþjóðakörfuknattleikssambandsins, sem er afrek þar sem ekki eru neinir vellir innanhúss í landinu. Þá er vert að taka fram að Suður-Súdan er yngsta land í heimi en landsið fékk sjálfstæði árið 2011 eftir margra ára borgarstyrjöld. Tíð átök, fátækt og hungursneið eru þó enn vandamál sem Suður-Súdan glímir við.

Þrátt fyrir að Suður-Súdan sé skipað sumu af hávaxnasta fólki í heimi má segja að Ólympíulið þeirra sé skipað flóttamönnum vegna ástandsins þar í landi. Luol Deng spilaði á sínum tíma fyrir Bretland og átti góðan feril í NBA-deildinni. Hann kemur upprunalega frá Suður-Súdan og hefur bæði þjálfað landsliðið sem og verið forseti körfuknattleiksambandsins þar í landi.

Leikmenn liðsins eru nær allt flóttamenn eða þá menn sem fæddust erlendis eftir að foreldrar þeirra flúðu bágar aðstæður þar í landi.

Þrátt fyrir allt þetta hefur lið Suður-Súdan vakið mikla athygli undanfarna daga, þá sérstaklega fyrir ótrúlega frammistöðu gegn stjörnuprýddu liði Bandaríkjanna. Vissulega var um vináttuleik að ræða en Bandaríkjamenn fögnuðu ógurlega þegar LeBron tókst að snúa leiknum þeim í hag, lokatölur 101-100.

Suður-Súdan hefur haldið góðu gengi sínu áfram og vann frábæran ellefu stiga sigur á Puerto Rico í C-riðli Ólympíuleikanna, lokatölur 90-79. Um er að ræða fyrsta sigur þjóðarinnar á Ólympíuleikunum og hver veit nema þeir verði enn fleiri.

Carlik Jones, fyrrverandi leikmaður Dallas Mavericks, Denver Nuggets og Chicago Bulls, var stigahæstur með 22 stig ásamt því að taka 7 fráköst og gefa 6 stoðsendingar. Þar á eftir kom Bul Kuol, leikmaður Sydney Kings í Ástralíu, með 17 stig, 3 fráköst og jafn margar stoðsendingar.

Þá skoraði Wenyen Gabriel 9 stig og tók 9 fráköst en hann hefur spilað fyrir lið á borð við Sacramento Kings, Portland Trail Blazers, New Orleans Pelicans, Brooklyn Nets, Los Angeles Lakers og Clippers ásamt Memphis Grizzlies.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×