Fótbolti

Andri Lucas kláraði læri­sveina Freys

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Andri Lucas Guðjohnsen skrifaði undir fjögurra ára samning við KAA Gent.
Andri Lucas Guðjohnsen skrifaði undir fjögurra ára samning við KAA Gent. kaagent.be

Andri Lucas Guðjohnsen skoraði eina mark leiksins er Gent vann sterkan 1-0 útisigur gegn Frey Alexanderssyni og lærisveinum hans í Kortrijk í fyrstu umferð belgísku úrvalsdeildarinnar í dag.

Andri Lucas var í byrjunarliði Gent og lék allan leikinn í fremstu víglínu, en sömu sögu er að segja af Patrik Gunnarssyni sem stóð í rammanum hjá Kortrijk.

Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Andri gestunum í Gent í forystu eftir rétt tæplega klukkutíma leik og þar við sat. Niðurstaðan því 1-0 sigur Gent sem er með þrjú stig eftir fyrstu umferðina, en Kortrijk, sem bjargaði sér naumlega frá falli á síðustu leiktíð, er án stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×